Viðgerðarþjónusta
Eirvík þjónustudeild er staðsett á Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.
Þjónustudeild Eirvíkur sér um viðgerðir og þjónustu á öllum tækjum og búnaði sem Eirvík ehf selur. Allar ábyrgðarviðgerðir skulu fara fram hjá Eirvík.
Ábyrgðaskilmálar eru hér.
Verðskrá þjónustudeildar Eirvík:
Tímagjald á verkstæði, 1 klst. - 29.800 kr. m/vsk.
Tímagjald í heimahúsi, 40 mín. - 39.800 kr. m/vsk.
Einnig taka fleiri neðangreindir aðilar að sér viðgerðir og þjónustu á tækjum og búnaði seldum af Eirvík ehf. Athygli er vakin á því að í öllum tilfellum er um sjálfstæða lögaðila að ræða.
| Tegund | Þjónustuaðilar | Sími |
|---|---|---|
| Allar ábyrgðarviðgerðir. Viðgerðir og varahlutir fyrir öll tæki sem seld hafa verið hjá Eirvík. | Eirvík ehfFosshálsi 1, 110 Reykjavíkverkst@eirvik.is | 588 0200 |
| Þjónusta og viðgerðir á heimilistækjum frá Eirvík | Rafós ehfGoðanesi 16, 603 Akureyrirafos@rafos.is | 519 1800 |
| Tengingar og lagnir að gastækjum frá Miele og Smeg. | E. Viljar ehfElías Viljar Sigurðssoneviljar@eviljar.is | 616 9611 |
| Þjónusta og viðgerðir á heimilistækjum frá Eirvík, fyrir utan kæli- & frystiskápa. | Tengill ehfBúlandi 4, 53 Hvammstangitengill@tengillehf.is | 455 9200 |
| Þjónusta og viðgerðir á heimilistækjum frá Eirvík, fyrir utan kæli- & frystiskápa. | Geisli raftækjavinnustofa Faxi ehfHilmisgata 4, 900 Vestmannaeyjarpetur@geisli.is | 481 3333 |
Mikilvægar upplýsingar
Ef tæki virkar ekki sem skyldi er oft hægt að leita til bæklings sem á að fylgja með öllum tækjum sem seld eru frá Eirvík ehf. Í bæklingum eru góðar leiðbeiningar varðandi uppsetningu og notkun tækjanna og þá sérstaklega hvað varðar stillingar og vandamál við notkun. Ef bæklingur finnst ekki má er oftast hægt að nálgast þá á heimasíðu Eirvíkur.
Ef bæklingur er ekki hjálplegur er best að hafa beint samband við viðgerðar-og þjónustuaðila sem taldir eru upp hér að ofan. Mikilvægt er að hafa réttar upplýsingar um módelnúmer og gerð tækis, svo hægt sé að vinna með réttar teikningar af þeim við þjónustu. Tæknimiði er oftast staðsettur einhvers staðar í falsi eða í innanrými tækis og á honum má finna módelnúmer og raðnúmer.
Vörur sem seldar eru af Eirvík og notaðar til heimilisnota eru með 2 ára ábyrgð á verksmiðju- og efnisgöllum. Þar af leiðandi er kvörtunarfrestur á galla 2 ár frá og með söludegi. Vörur sem keyptar eru á kennitölum fyrirtækja eru með 1 árs ábyrgð á verksmiðju- og efnisgöllum.
Neytandi sem telur sig hafa ábyrgðarbilun verður að sanna að hann hafi keypt vöruna hjá Eirvík og framvísa nótu. Ábyrgð gildir aðeins ef um galla er að ræða en ekki vegna slits eða að fyrirmælum framleiðanda varðandi uppsetningu eða notknun hafi ekki verið fylgt.