InnréttingarHäcker, bulthaup og Röshults útieldhús

Um okkur
Eirvík hefur verið með hágæða eldhúsinnréttingar til sölu síðan 1996. Í gegnum árin hefur ástríða okkar fyrir eldhúsum bæði aukið þekkingu okkar og leiðbeint okkur í hönnun fallegra eldhúsinnréttinga. Við trúum því að góður arkítektúr sé ekki aðeins falleg list, heldur þurfi skipulag og tæknilegir hlutir að vera í lagi. Eldhúsrýmið á að taka vel á móti öllum sem um það ganga.
Við vinnum út frá þeirri staðföstu trú okkar að eldhúsið sé ótvírætt hjarta heimilisins. Við bjóðum uppá framsýna hönnun og alþjóðlega þekkt vörumerki. Markmið okkar er að bjóða Íslendingum upp á þá hönnun, gæði og þjónustu sem tíðkast í erlendum stórborgum. Við höfum næmt auga fyrir smáatriðum sem leiðir til klæðskerasniðinna lausna sem falla að þörfum og lífstíl hvers og eins viðskiptavinar fyrir sig.
Vörumerkin okkar

Häcker
Skoða nánar-a71d1973.jpg&w=3840&q=100)
bulthaup
Skoða nánar
Röshults útieldhús
Skoða nánar
Fyrirspurn