Fara í meginmál

Vörunúmer: PRF0098365

Elica

AUDREY

Eftirtektarverður eyjuháfur frá Elica með hvítum kúpli. Háfurinn er fágaður, nettur og hangir í vírum niður úr loftinu. Háfurinn er hringrásandi, stílhrein hlíf felur filtera og falleg LED lýsing skín niður á helluborðið.


Hönnun: FABRIZIO CRISÀ

259.990 kr.

Ekki til á lager

AUDREY

Stílhrein hönnun fyrir mínímalískan stíl 

AUDREY er hannaður af FABRIZIO CRISÀ og tilheyrir línu nýju EVOLUTION háfanna frá Elica. Staðalhugmyndinni um eyjuháfa var umbreytt með fyrstu EVOLUTION línunni sem sett var á markað árið 2005 og auðkenndist, líkt og sú nýja, af léttum og nettum ljósakrónuháfum. Mjúkar línur auk fágaðrar lýsingar eru hvað mest einkennandi fyrir AUDREY. Stílhreinn glerskjöldur felur filtera, mjög falleg LED lýsing skín niður á helluborðið undan skildinum og veitir bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna. 

AUDREY

Hljóðlátur háfur fyrir opin rými

Samhliða vinsældum opinna rýma þar sem eldhús eru tengd við setustofu, hefur orðið vinsælla að setja upp háfa sem skyggja sem minnst á útsýnið. Uppsetningarmöguleikar AUDREY eru tvenns konar. Annars vegar er hægt að hengja hann upp á vegg og hins vegar er hægt að hafa hann hangandi í vírum niður úr loftinu. Hangandi háfar eru mjög léttir á að líta og sóma sér þar af leiðandi mjög vel uppsettir yfir helluborði á eyju í eldhúsinu. Ekki spillir fyrir hversu hljóðlátur háfurinn er og einkar ánægjulegt að geta átt samræður í nágrenninu við hámarks sogkraft án þess að háfurinn ónáði. Háfurinn er hringrásandi, stjórnborð með snertitökkum er einfalt í notkun og fjórar aflstillingar í boði. Fjarstýring sem stýrir öllum stillingum háfsins fylgir auk þess með, til þægindaauka.

AUDREY

Jaðarsog og LongLife kolafilter

Regluleg þrif háfsins tryggja ekki aðeins hreinlæti í eldhúsinu, heldur einnig lengri líftíma vörunnar.  AUDREY er með jaðarsogi og eru filterar staðsettir fyrir ofan stílhreinan glerskjöld. Aðgengi að bæði fitufilterum úr áli og LongLife kolafilterum er einfalt, auðvelt er að fjarlægja filterana og setja þá aftur á sinn stað. LongLife kolafiltera má endurnýta með því að þrífa þá í uppþvottavél 2 til 3 hvern mánuð. Líftími kolafiltersins verður allt að þrjú ár með þessu móti og komist verður hjá tíðum og eyðslusömum útskiptum filtera.