
Smekkleg hönnun sem einkennist af ryðfríu stáli og hreinum línum
Fyrsta vörulínan sem Smeg hannaði í samstarfi við arkítektinn Guido Canali fékk nafnið Classica. Ryðfrítt stál er aðalsmerki línunnar og hvernig það er notað á afskaplega smekklegan og nákvæman hátt. Tækin í Classic línunni eru með einkennandi stjórntökkum og handföngum, sem minna um margt á tæki í atvinnueldhúsum. Þau eru hagnýt og fjölhæf sem endurspeglar, auk glæsilegrar útlitshönnunar, gæði þeirra. Hönnunin einkennist af beinum línum, einföldum formum og er í senn hrein og fáguð. Skemmtilega tímalaus stíll með nútímalegu ívafi sem sómir sér vel í flestum gerðum eldhúsa.

Elektrónísk hitastýring og einföld þrif
Ofninn er með einföldu og notendavænu stjórnborði, LCD skjá og tveimur stjórntökkum. Elektrónísk hitastýring heldur nákvæmu hitastigi í ofnrýminu og gefur möguleika á fullkominni eldun rétta sem eru viðkvæmir fyrir hitabreytingum. Vapor hreinsikerfið notar gufu til þess að losa um matarleifar og óhreinindi af yfirborði ofnrýmisins, þannig að auðvelt sé að þrífa leifarnar í burtu. Ofnrýmið er með yfirborði úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðarinnar og þrífa á milli þeirra. Allt ofantalið auðveldar þína vinnu við þrif á ofninum.

Aukið öryggi og hámarks þægindi
Útdraganlegar brautir veita ákjósanlegt aðgengi að matnum í ofninum. Þær gera þér kleift að snúa grænmetinu eða dreypa feiti á steikina á þægilegan hátt og í öruggri fjarlægð frá heitu ofnrýminu. Brautirnar eru hálf-útdraganlegar og auðvelt er að draga plötur og grindur út úr ofninum án þess að eiga á hættu að brenna sig. Ofninn er auk þess kældur á öllum hliðum sem tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Allt ofantalið veitir aukið öryggi, þægindi við notkun og verndar gegn bruna.
