Fara í meginmál

Vörunúmer: SF67C1PO

Smeg

Blástursofn - Cortina

Blástursofn úr Cortina línu Smeg sem er með 6 eldunarkerfum, 70 L ofnrými og halógen lýsingu. Falleg analog klukka prýðir stjórnborð og er litur ofnsins blanda af anthracite og antík brass.

198.930 kr.

Sérpöntun

Gashelluborð - Cortina

Blær fortíðar endurvakinn

Cortina línan er hönnuð í samstarfi við járnsmiðsmeistarann Giancarlo Candeago. Innblásturinn er fenginn frá handverksmeisturum ítalskra fjalla til forna og sköpunarverka þeirra úr smíðajárni. Stíllinn endurspeglar einstakar útlínur fjallakofa í Ölpunum og arkítektúr forn ítalskra híbýla. Vandað efnisval og notkun lita gefa tækjunum óviðjafnanlega heillandi útlit. Tækin eru fáguð og vekur hönnun þeirra upp töfra þessarar gömlu smíðajárns handiðnar.

Blástursofn - Cortina

Einfölf þrif og köld framhlið

Ofninn er kældur á öllum hliðum sem tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Þetta veitir bæði öryggi og verndar gegn bruna. Þrif ofnrýmis eru einföld. Ofnrýmið er með yfirborði úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðarinnar og þrífa á milli þeirra.