
Moisture Plus
Ákjósanlegur árangur með meiri raka
Auðveldasta leiðin til þess að ná fullkomnum árangri: ýmis eldunarkerfi gefa þér möguleika á því að bæta við meiri raka. Rakastýring tryggir að kjöt fær dásamlega harða skorpu að utan en helst mjúkt og safaríkt fyrir innan skorpuna, einnig fá brauð og bakkelsi fullkomna brúnun en haldast mjúk fyrir innan skorpuna. Þú getur tímastillt ofninn til þess að gefa gufupúst á ákveðnum tímum til þægindaauka. Rakastýringin er einnig notuð í ýmsum sjálfvirkum kerfum.

Auto kerfi
Áhyggjulaus eldun og árangur gulltryggður
Árangursrík eldun í hvert skipti: með sjálfvirkum kerfum getur þú eldað fjöldann allan af mismunandi réttum á einfaldan hátt. Hvort sem þú ert að fara að baka köku eða elda kjúkling – þá er ekki þörf á því að velja ákveðið eldunarkerfi, hitastig né tímalengd. Stig eldunar er hins vegar hægt að velja sérstaklega á stuðlariti, fyrir kjöt t.d. frá "rare" til "well done".

Kjarnhitamælir
Fullkomin eldun án eftirlits
Eldun með kjarnhitamæli tryggir besta árangurinn: þú getur eldað kjöt, fisk og alifuglakjöt með fullkominni nákvæmni með kjarnhitamæli frá Miele. Og það er óþarfi að sitja yfir ofninum vegna þess að skjárinn gefur upp eftirstöðvar eldunartíma og þar með hvenær maturinn verður tilbúinn. Eldunartíma lýkur þegar stilltum kjarnhita er náð.

TasteControl
Heldur einungis áfram með eldun ef þú vilt það
Stoppar eldunarferlið fyrir fullkominn árangur: ofnrýmið er hægt að kæla algerlega niður eftir eldunarferlið, þannig að matvælin haldi ekki áfram að eldast í ofninum. Einnig getur ofninn haldið matvælum á því hitastigi sem þau eru borin fram, með því að opna og loka rafstýrðu hurðinni. Þetta tryggir að réttirnir þínir eru eldaðir fullkomlega en ekki of mikið – jafnvel þótt þú sért ekki á staðnum til þess að taka þá út úr ofninum alveg strax.

FlexiClip brautir
Ákjóanlegasta aðgengi að matnum þínum
Snúðu matnum eða dreyptu á hann feiti meðan á ofnsteikingu stendur á þægilegan hátt og í öruggri fjarlægð frá heitu ofnrýminu: með útdraganlegum FlexiClip brautum, getur þú auðveldlega dregið bökunarplötur eða grillgrindur alveg út úr ofninum án þess að eiga á hættu að brenna þig. Brautirnar eru útdraganlegar að fullu og mögulegt er að staðsetja þær á mismunandi hæðum allt eftir þínum þörfum, en Miele er með einkaleyfi á þessu kerfi.

Crisp function
Gerir mat stökkan
Sum matvæli þurfa fallegt stökkt yfirborð fyrir þessa fullkomnu lokaáferð: best er til dæmis að elda kartöfluflögur, pizzu og franskar kartöflur í ofnrými með þurrum hita. Þessu er stjórnað með því að minnka rakann í ofninum. Þú getur valið stillinguna Crisp function eina og sér.

Pyrolytic sjálfhreinsikerfi og PyroFit aukahlutir
Áreynslulaus þrif
Gerir lífið auðveldara: pyrolytic sjálfhreinsikerfið breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborði ofnrýmisins án ummerkja – sem minnkar þína vinnu við þrif á ofninum. Þetta þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba ofninn með sterkum hreinsiefnum. Til þægindaauka mega sumir aukahlutir vera inni í ofninum á meðan sjálfhreinsun fer fram, en athugið að þetta er mismunandi á milli módela.

SoftOpen & SoftClose
Mjúkar hurðarhreyfingar
Virkilega eftirtektarvert: hurðin er með einkennandi háþróuðu demparakerfi fyrir vandaða opnun og lokun. Hún opnast í 90° - sem veitir óhindrað aðgengi að matnum í ofnrýminu til þægindaauka.
