Fara í meginmál

Vörunúmer: H2861-1BPS

Miele

Blástursofn með pyro 125 Edition – EasyControl Plus

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Innbyggður blástursofn frá Miele. Ofninn er með EasyControl Plus stjórntökkum og sjálfhreinsikerfi fyrir einföld þrif.

339.990 kr.

Ekki til á lager

Blástursofn með pyro – EasyControl Plus

Auto kerfi

Áhyggjulaus eldun og árangur gulltryggður 

Árangursrík eldun í hvert skipti: með sjálfvirkum kerfum getur þú eldað fjöldann allan af mismunandi réttum á einfaldan hátt. Hvort sem þú ert að fara að baka köku eða elda kjúkling – þá er ekki þörf á því að velja ákveðið eldunarkerfi, hitastig né tímalengd. Stig eldunar er hins vegar hægt að velja sérstaklega, t.d. fyrir kjöt frá "rare" til "well done".

Þurrkari með PerfectDry & FragranceDos2 (8kg)

Miele@home

Snjöll stjórnun gegnum netið

Með nýjunginni Miele@home, getur þú fullnýtt þér alla möguleika Miele tækisins þíns og snjallvætt hversdagslífið enn frekar. Öllum Miele snjalltækjum er hægt að stjórna á þægilegan og öruggan hátt í gegnum netið. Notkun fer fram í gegnum WiFi router og Miele skýið.

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

SoftOpen & SoftClose 

Mjúkar hurðarhreyfingar

Virkilega eftirtektarvert: hurðin er með einkennandi háþróuðu demparakerfi fyrir vandaða opnun og lokun. Hún opnast í 90° - sem veitir óhindrað aðgengi að matnum í ofnrýminu til þægindaauka.

Blástursofn með pyro – EasyControl Plus

Tímastjórnun

Leyfðu ofninum að sjá um tímastjórnun

Stilltu einfaldlega inn upphafstíma, lokatíma eða tímalengd eldunarferlisins og allt verður tilbúið þegar þú vilt. Eldunarferlinu lýkur sjálfkrafa í lok tímasettra ofnkerfa. Tímastillir, sem telur mínútur og sekúndur, er einnig þægilegur valkostur fyrir margar aðstæður. Enn fremur, ef rafmagnsleysi á sér stað, er stilltur tími tækisins vistaður í allt að 150 klst.

Blástursofn með pyro – EasyControl Plus

Pyrolytic sjálfhreinsikerfi

Áreynslulaus þrif 

Gerir lífið auðveldara: pyrolytic sjálfhreinsikerfið breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborði ofnrýmisins án ummerkja – sem minnkar þína vinnu við þrif á ofninum. Þetta þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba ofninn með sterkum hreinsiefnum. 

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Orkunýtni

Einstök orkunýting

Einstaklega lítil orkunotkun: næstum allir ofnar frá Miele eru í orkunýtingarflokki A+. Þetta sparar mikla orku – sem er gott fyrir umhverfið og veskið þitt.

Blástursofn með pyro - DirectSensor S

Köld framhlið 

Eina sem hitnar er maturinn 

Miele ofnar eru kældir á öllum hliðum. Þetta tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Marglaga panelar einangra ofnhurðina á árangursríkan hátt og tryggja lágt hitastig fyrir utan hana, en þetta veitir öryggi og verndar gegn bruna.

Blástursofn með pyro – EasyControl Plus

Öryggisvirkni

Hámarksöryggi í hvaða aðstæðum sem er

Aukið öryggi: þú getur læst heimilistækinu og komið í veg fyrir óviljandi notkun, t.d. barna. Miele ofninn slekkur einnig sjálfkrafa á sér ef farið er yfir ákveðinn hámarksnotkunartíma. Þetta þýðir að öryggi er tryggt jafnvel þótt þú gleymir að slökkva á ofninum.