Fara í meginmál

Vörunúmer: SFP9302TX

Smeg

Blástursofn með pyro - Classic

90 cm breiður blástursofn með elektrónískri hitastýringu og sjálfhreinsikerfi úr klassísku línu Smeg. Þrjár blástursviftur í ofnrými tryggja frábæra eldunarhæfni. Ofninn er auk þess orkunýtinn og yfirborði úr kámfríu stáli. 

539.990 kr.

Sérpöntun

Gashelluborð - Classic

Smekkleg hönnun sem einkennist af ryðfríu stáli og hreinum línum

Fyrsta vörulínan sem Smeg hannaði í samstarfi við arkítektinn Guido Canali fékk nafnið Classica. Ryðfrítt stál er aðalsmerki línunnar og hvernig það er notað á afskaplega smekklegan og nákvæman hátt. Tækin í Classic línunni eru með einkennandi stjórntökkum og handföngum, sem minna um margt á tæki í atvinnueldhúsum. Þau eru hagnýt og fjölhæf sem endurspeglar, auk glæsilegrar útlitshönnunar, gæði þeirra. Hönnunin einkennist af beinum línum, einföldum formum og er í senn hrein og fáguð. Skemmtilega tímalaus stíll með nútímalegu ívafi sem sómir sér vel í flestum gerðum eldhúsa.

Blástursofn með pyro - Classic

Áreynslulaus þrif sem gera lífið auðveldara 

Pyrolytic sjálfhreinsikerfið hitar ofnrýmið upp í 500°C og breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborðinu. Þetta auðveldar þrif á ofninum og þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba hann að innan með sterkum hreinsiefnum. Ofnrýmið er með yfirborði úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auðvelt er að setja toppgrill ofnsins niður og þrífa loftið þar fyrir ofan. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðarinnar og þrífa á milli þeirra.

Blástursofn - Classic

Aukið öryggi og hámarks þægindi

Blástursofninn er með mjúklokun sem dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Hurðin lokast þar af leiðandi bæði varlega og hljóðlega. Útdraganlegar brautir veita ákjósanlegt aðgengi að matnum í ofninum. Þær gera þér kleift að snúa grænmetinu eða dreypa feiti á steikina á þægilegan hátt og í öruggri fjarlægð frá heitu ofnrýminu. Brautirnar eru útdraganlegar að fullu og auðvelt er að draga plötur og grindur út úr ofninum án þess að eiga á hættu að brenna sig. Ofninn er auk þess með kaldri framhlið og kældur á öllum hliðum sem tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Allt ofantalið veitir aukið öryggi, þægindi við notkun og verndar gegn bruna.