
Auto kerfi
Áhyggjulaus eldun og árangur gulltryggður
Árangursrík eldun í hvert skipti: með sjálfvirkum kerfum getur þú eldað fjöldann allan af mismunandi réttum á einfaldan hátt. Hvort sem þú ert að fara að baka köku eða elda kjúkling – þá er ekki þörf á því að velja ákveðið eldunarkerfi, hitastig né tímalengd. Stig eldunar er hins vegar hægt að velja sérstaklega, t.d. fyrir kjöt frá "rare" til "well done".

Miele@home
Snjöll stjórnun gegnum netið
Með nýjunginni Miele@home, getur þú fullnýtt þér alla möguleika Miele tækisins þíns og snjallvætt hversdagslífið enn frekar. Öllum Miele snjalltækjum er hægt að stjórna á þægilegan og öruggan hátt í gegnum netið. Notkun fer fram í gegnum WiFi router og Miele skýið.

SoftOpen & SoftClose
Mjúkar hurðarhreyfingar
Virkilega eftirtektarvert: hurðin er með einkennandi háþróuðu demparakerfi fyrir vandaða opnun og lokun. Hún opnast í 90° - sem veitir óhindrað aðgengi að matnum í ofnrýminu til þægindaauka.

Tímastjórnun
Leyfðu ofninum að sjá um tímastjórnun
Stilltu einfaldlega inn upphafstíma, lokatíma eða tímalengd eldunarferlisins og allt verður tilbúið þegar þú vilt. Eldunarferlinu lýkur sjálfkrafa í lok tímasettra ofnkerfa. Tímastillir, sem telur mínútur og sekúndur, er einnig þægilegur valkostur fyrir margar aðstæður. Enn fremur, ef rafmagnsleysi á sér stað, er stilltur tími tækisins vistaður í allt að 150 klst.

CleanSteel
Áferð fyrir gallalaust yfirborð úr ryðfríu stáli
Sérstök áferð: Miele tæki úr ryðfríu stáli eru með sérstakri hágæða CleanSteel áferð. Þetta gerir yfirborðið mjög auðvelt í þrifum án þess að þörf sé á sérstökum hreinsiefnum. Fingraför? Nánast ósýnileg á Miele CleanSteel.

Pyrolytic sjálfhreinsikerfi
Áreynslulaus þrif
Gerir lífið auðveldara: pyrolytic sjálfhreinsikerfið breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborði ofnrýmisins án ummerkja – sem minnkar þína vinnu við þrif á ofninum. Þetta þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba ofninn með sterkum hreinsiefnum.

Orkunýtni
Einstök orkunýting
Einstaklega lítil orkunotkun: næstum allir ofnar frá Miele eru í orkunýtingarflokki A+. Þetta sparar mikla orku – sem er gott fyrir umhverfið og veskið þitt.

Köld framhlið
Eina sem hitnar er maturinn
Miele ofnar eru kældir á öllum hliðum. Þetta tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Marglaga panelar einangra ofnhurðina á árangursríkan hátt og tryggja lágt hitastig fyrir utan hana, en þetta veitir öryggi og verndar gegn bruna.

Öryggisvirkni
Hámarksöryggi í hvaða aðstæðum sem er
Aukið öryggi: þú getur læst heimilistækinu og komið í veg fyrir óviljandi notkun, t.d. barna. Miele ofninn slekkur einnig sjálfkrafa á sér ef farið er yfir ákveðinn hámarksnotkunartíma. Þetta þýðir að öryggi er tryggt jafnvel þótt þú gleymir að slökkva á ofninum.
