Fara í meginmál

Vörunúmer: 593120CHR

Schock

Blöndunartæki - KARPO

Klassískt, krómað blöndunartæki úr KARPO línu Schock. Mögulegt er að úða vatnsbununni og stútinn er hægt að losa frá sem býður upp á mikinn sveigjanleika.

69.990 kr.

Ekki til á lager

Quartz vaskur flush - GREENWICH N-100

Hágæða hönnun, nútímalegt útlit og hámarks sveigjanleiki við notkun

Í nútíma eldhúsi er svæðið þar sem uppþvottur fer fram einnig notaður fyrir undirbúning og þrif á ferskvöru. Grænmeti og ávextir er þvegið, skorið og sett í hentugar skálar, stórir pottar eru fylltir af vatni, kál skolað og vinnusvæðið þrifið að því loknu. Allt þetta er bæði einstaklega auðvelt og þægilegt með KARPO blöndunartæki frá SCHOCK. Blöndunartækinu svipar til blöndunartækja sem notuð eru í veitingageiranum; krananum er hægt að snúa í 360°, stútinn er hægt að losa úr hakinu og sveigja slönguna eftir hentugleika. Mögulegt er að breyta venjulegri vatnsbunu í úða með einföldum rofa sem er staðsettur rétt fyrir ofan stútinn. Þannig má til dæmis skipta á milli venjulegrar vatnsbunu sem er frábær til þess að fylla vaskinn af vatni og úða sem er fullkominn til þess að skola salatblöð, ávexti og grænmeti. Auk þess er KARPO blöndunartækið með innbyggðum hitanema sem passar að vatnið verði ekki of heitt og verndar þar með litla og stóra fingur frá því að brenna sig.