
Fágað og fallegt blöndunartæki með háum krana
GOTA blöndunartæki frá Schock fangar athyglina í eldhúsinu. Kraninn er hár með einkennandi löngum, bognum hálsi sem gefur afskaplega fágað og fallegt útlit. Hár krani lítur ekki bara vel út, heldur er hann líka ótrúlega nytsamlegur. Nægt rými myndast í vaskinum undir krananum t.d. til þess að þvo upp stóra potta eða fylla blómavasa af vatni. Blöndunartækið er útdraganlegt, snúningsgeta kranans 360° og hentar það þess vegna vel með stórum vöskum. Útdraganlegur stútur eykur sveigjanleika við notkun. Auðveldara verður að skola af leirtaui, fylla stóra potta af vatni og að ná út í öll horn vasksins.
-89e8f58b.jpg&w=3840&q=100)