Fara í meginmál

Vörunúmer: 24175

Jura

Bollahitari S - lítill

Kaffibarþjónar mæla með því að forhita postulínsbolla. Það er vegna þess að þegar nýlagað kaffi flæðir í kaffibollann þá lækkar hitastig á kaffi, um leið, um allt að 10°C. Bragð og ilmur af kaffi nær einungis að njóta sín í bollanum við rétt hitastig. Þessi hagnýti og litli bollahitari er fullkomin viðbót við Jura kaffivélina þína. 

24.990 kr.

Bollahitari S - lítill

Einföld, flott og nett hönnun

Málsetningar S bollahitarans eru aðeins 13.9 x 19.9 x 25.8 cm og passar hann því auðveldlega á flesta staði. S bollahitarinn er einföld og fáguð viðbót við hvaða sjálfvirku kaffivél sem er, og það eina sem þarf til þess að hefja notkun er að kveikja á On/Off takkanum.

Bollahitari S - lítill

Þægileg geymslulausn 

Rúmtak S bollahitarans hentar fyrir átta espresso bolla (Ø 57 mm), sex kaffibolla (Ø 66 mm) eða fjóra cappuccino bolla (Ø 90 mm) og hentar hann því einkar vel til heimilisnota.

Bollahitari S - lítill

Fullkomið hitastig bolla

Í S bollahitaranum er kaffibollunum haldið við stöðugt hitastig, í kringum 55°C. Lokið kemur í veg fyrir varmatap úr bollunum, sem sparar orku. Með forhituðum bollum við fullkomið hitastig, munu kaffidrykkirnir bragðast jafnvel enn arómatískari en þeir hafa gert hingað til - hvort sem um ræðir eldheitan espresso eða kremaðan cappuccino.