Fara í meginmál

Vörunúmer: DA6890

Miele

Borðvifta - Levantar

Sýningareintak úr verslun


Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Borðvifta frá Miele með dimmanlegri LED lýsingu og snertitökkum fyrir þægilega notkun. Notkun er handhæg og knýr mótor viftuna upp og niður úr borði. Fágað og stílhreint lok lokar viftunni þegar hún er í neðstu stöðu. Viftan er mjög öflug, eða 710 m3/h á booster stillingu og hægt er að nota hana bæði til útblásturs og hringblásturs. Fyrir lyktarlaust loft í eldhúsi er mögulegt að láta háfinn ganga í 15 mín að eldun lokinni og láta hann slökkva sjálfkrafa á sér að þeim tíma liðnum. Viftan er 91,6 cm breið og passar fullkomlega með heluborðum KM6381 og KM6699.

479.990 kr.

Borðvifta - Levantar

Háfur á hreyfingu

Mótor knýr borðviftu upp og niður

Borðviftan frá Miele er skemmtilegur valkostur fyrir þá sem eru með séróskir og vilja ekki láta mikið á viftunni bera. Fágað og stílhreint lok lokar viftunni þegar hún er í neðstu stöðu. Borðviftan færist sjálfkrafa upp í fullkomna stöðu fyrir notkun og aftur niður til baka þegar slökkt er á henni. Borðviftan er mjög öflug, vinnuvistfræði er frábær og samþætting viftunnar í eldhúsinu fullkomin.

Innbyggð vifta í efri skáp

Jaðarsog

Fallegir panelar í stað fitufiltera úr stáli

Í háfum og viftum með jaðarsogi eru venjulegu stál fitufilterarnir í felum á bak við fallega panela. Gufan sem myndast við eldamennskuna sogast inn í háfinn við jaðar panelsins.  Í háfum með margsvæða jaðarsogi sogast gufan einnig inn á háfinum miðjum eða á milli panelanna.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Virkur AirClean kolafilter

Algerlega lyktarlaust eldhús

Þegar háfurinn er notaður í hringblæstri getur þú notað virkan kolafilter til þess að fjarlægja lykt sem myndast við eldamennsku. Þessum einnota filter þarf að skipta út reglulega.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Öflugur, hágæða mótor

Sérstaklega öflugur

Háfurinn er með hágæða miðflótta viftu sem er með sogi á tveimur hliðum. Þessar öflugu einingar tryggja kraftmikil loftskipti öllum stundum auk hámarks sogkrafts. Viftan er þægilega lágvær, þrátt fyrir það hversu öflug hún er.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Handgert í Þýskalandi

Hver Miele háfur er einstakur

Næstum allir Miele háfar eru þróaðir og framleiddir í verksmiðju Miele í Arnsberg, Þýskalandi og eru fyrir mestan part handgerðir. Hver háfur er einstakur. Á hverju stigi framleiðslunnar er þörf fyrir ákveðna verkkunnáttu handverksfólks: allt frá því að móta stálið að því að sjóða það saman og slípa. Skuldbinding starfsfólks, kunnátta þeirra, sköpunarkraftur og löngun til að skara fram úr hefur haft mikil áhrif á þá stöðu sem Miele hefur á markaðinum í dag.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Einfalt perlugler – hert gler

Sérstök vörn fyrir háfa úr gleri

Miele háfar sem eru samsettir úr gleri og ryðríu stáli, eru með einföldu hertu öryggisgleri. Ef það skyldi brotna, þá splundrast það í marga litla og bitlausa bita. Eins og við er að búast, tryggir Miele hámarks öryggi skyldi hið ófyrirsjáanlega gerast.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Öryggisvirkni 

Öryggið alltaf sett á oddinn

Háfurinn slekkur sjálfkrafa á sér eftir 10 klukkustundir. Þetta tryggir hámarks öryggi jafnvel ef um stýrivillu er að ræða.