
Con@ctivity
Snjöll stjórnun
Með Con@ctivity getur þú einbeitt þér algjörlega að eldamennskunni. Þetta er vegna þess að háfurinn og helluborðið eiga í þráðlausum samskiptum við hvort annað. Helluborðið sendir upplýsingar um aflstillingar sínar til háfsins, sem aðlagar sogkraft sinn sjálfkrafa eftir þeim og tryggir hámarks loftgæði öllum stundum. Samskiptin milli helluborðs og háfs er komið á annað hvort með ZigBee (Con@ctivity 2.0) eða WiFi (Con@ctivity 3.0).

CleanCover
Auðveld og örugg þrif á innrarými
Miele CleanCover er staðsett bak við fitufilter: engin hætta er á að komast í snertingu við beittar brúnir málma, raflagnir eða mótor. CleanCover yfirborðið bak við filterinn er viðloðunarfrítt, einstaklega slétt og fellt og þar af leiðandi mjög auðvelt í þrifum. Ótrúlega þægilegt og öruggt.

Jaðarsog
Fallegir panelar í stað fitufiltera úr stáli
Í háfum og viftum með jaðarsogi eru venjulegu stál fitufilterarnir í felum á bak við fallega panela. Gufan sem myndast við eldamennskuna sogast inn í háfinn við jaðar panelsins.

ECO mótor
Hjarta hvers háfs
Mótorinn er hjarta og sál hvers háfs. Sumir Miele háfar er með ECO mótor. Hann notar jafnspennu og er orkusparnaður allt að 50% miðað við venjulegan mótor. ECO mótorar eru mjög hljóðlátir en samt eins öflugir og mótorar í öðrum Miele háfum og viftum.

Fitufilter úr ryðfríu stáli
Fagurfræði og góð hönnun
Fitufilterinn er gerður úr 10 lögum af ryðfríu stáli sem virkar frábærlega við að fjarlægja fitu. Innbyggð fallvörn tryggir örugga notkun og verndar helluborðið gegn skemmdum. Ystu lög og rammi filtersins eru úr hágæða ryðfríu stáli. Filterinn heldur hágæða útliti sínu í langan tíma og engin sjáanleg litabreyting verður á honum þegar hann er þrifinn í uppþvottavél.

Virkur AirClean kolafilter / Long-Life kolafilter
Algerlega lyktarlaust eldhús
Þegar háfurinn er notaður í hringblæstri þarft þú nota virkan kolafilter eða Long-life kolafilter til þess að fjarlægja lykt sem myndast við eldamennsku. Virkur kolafilter er einnota og þarf að skipta út reglulega, en Long-life filter er hægt að þrífa og er margnota.

Öryggisvirkni
Öryggið alltaf sett á oddinn
Háfurinn slekkur sjálfkrafa á sér eftir 10 klukkustundir. Þetta tryggir hámarks öryggi jafnvel ef um stýrivillu er að ræða.
