Fara í meginmál

Vörunúmer: CSDA7001FL

Miele

Borðvifta - SmartLine raðeining

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

SmartLine borðvifta frá Miele. Viftan er um það bil 12 cm á breidd og mögulegt er að nota hana bæði til útblásturs og hringblásturs. Borðviftan er hljóðlát, með orkunýtnum ECO mótor og þægilegu SmartSelect stjórnborði með snertitökkum. Fitufilterinn er mjög endingargóður, gerður úr 10 lögum af ryðfríu stáli og má fara í uppþvottavél. SmartLine raðeiningum er hægt að raða upp á mismunandi hátt eins og hentar vegna þess að þær samþættast fullkomlega. Raðeininguna er bæði hægt að fella niður í borðplötu og hafa yfirfellda.

429.990 kr.

Sérpöntun

Borðvifta - SmartLine raðeining

SmartSelect

Auðveld notkun með SmartSelect

Aflstillingar og tíma er hægt að stilla með ótrúlega auðveldum og hröðum hætti með SmartSelect. Talnaborð með gulu ljósi er auðvelt álestrar frá hvaða sjónarhorni sem er. Tímastillingar eru auðveldari með SmartSelect, þar sem "Tímastilli" og "Vifta slekkur á sér sjálfvirkt" er hægt að stilla inn sitt í hvoru lagi.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

ECO mótor

Hjarta hvers háfs

Mótorinn er hjarta og sál hverrar viftu. Sumir Miele háfar og viftur eru með ECO mótor. Hann notar jafnspennu og er orkusparnaður allt að 50% miðað við venjulegan mótor. ECO mótorar eru mjög hljóðlátir en samt eins öflugir og mótorar í öðrum Miele háfum og viftum.

Borðvifta - SmartLine raðeining

FlameGuard

Vernd gagnvart gasloga

Mögulegt er að setja Smartline borðviftuna upp við hliðina á öllum Smartline raðeiningum. Þegar borðviftan er sett upp við hliðina á raðeiningum með gasbrennurum, er nauðsynlegt að nota FlameGuard. FlameGuard er hlíf sem er yfir borðviftunni. Hún opnast sjálfkrafa, er haldið á réttum stað með segulkrafti og mögulegt er að nota hana báðu megin við borðviftuna. FlameGuard kemur í veg fyrir að gasloginn sogist niður í borðviftuna