CLARIS Pro Blue vatnsfilter
Vatnsfilter í Jura kaffivélar. Kaffi er 98% vatn. Þeim mun betri sem vatnsgæðin eru, þeim mun betra verður kaffibragðið. CLARIS Pro Blue vatnsfilter síar vatn með áreiðanlegum hætti. Eftir stendur besta innihaldsefni fullkomins kaffibolla – hreint vatn fyrir hreina ánægju.
CLARIS Pro Blue vatnsfilter er skynsöm lausn, sérhönnuð fyrir sjálfvirkar JURA kaffivélar þar sem mögulegt er að hella upp á cappuccino með einni snertingu. Filterinn inniheldur efni sem bindur kalsíumkarbónat. Þannig kemur filterinn í veg fyrir útfellingar í vatnsleiðslum kaffivélarinnar. Hann filtrar einnig mörg önnur efni úr vatninu sem geta skaðað bragð og lykt lokaafurðarinnar. Hollu steinefnin og flúoríðin haldast þó í vatninu. Þar af leiðandi þarf ekki að afkalka kaffivélar frá Jura ef CLARIS Pro Blue vatnsfilter er notaður.
Ending filters fer eftir vatnshörku þess vatns sem sett er í vélina. Stilla þarf vatnshörku í kaffivélum;
- við 1-10°dH: Allt að 300 L
- við 11-12°dH: Allt að 240 L
- við 13-15°dH: Allt að 180 L
- við 16-20°dH: Allt að 120 L
- við 21-25°dH: Allt að 95 L
- við 26-30°dH: Allt að 80 L
6.990 kr.
