
Værfærin þvottameðhöndlun
PerfectCare tækni
PerfectCare tækni byggist á fjórum megin þáttum. Miele tromla með vaxkökumynstri tryggir varfærna meðhöndlun þvotts, sjálfvirk PerfectDry rakaskynjun stillir tíma þurrkunar í samræmi við afgangsraka, Thermo spin blæs heitu lofti á þvottinn fyrir þurrkun á meðan vinduhraðinn er aukinn og sjálfvirk hreinsun á ló sér til þess að mislitun þvottar vegna smits frá gamalli ló á sér ekki stað. Árangurinn lætur ekki á sér standa; þvottatæknin tryggir bestu mögulegu meðhöndlun þvotts sem skilar sér í betri endingu fatnaðar.

Fullkomin lausn fyrir þvott á sérhæfðum textílefnum
CapDos *
Auðvelt er að þvo sérhæfð textílefni í combi þvottavél & þurrkaranum með hylkjum frá Miele sem eru einfaldlega sett í hólfið fyrir mýkingarefni. Þvottavélin skammtar innihaldinu úr hylkinu inn í þvottakerfið á réttum tíma – algerlega sjálfvirkt. Þú hefur val um nokkur sértæk þvottaefni (íþróttafatnaður, dúnn, útivistarfatnaður, ullarefni, silki, vatnsþéttiefni), 3 mýkingarefni (Aqua, Nature, Cocoon), auk þvottaefnisaflauka fyrir erfið óhreinindi.
* Einkaleyfi EP 2 365 120

Snjöll stjórnun gegnum netið
Miele@home *
Njóttu nútíma þæginda með því að tengja combi þvottavélina & þurrkarann við Miele appið og stjóraðu tækinu hvar sem er á heimilinu. Fáðu tilkynningar þegar kerfi er lokið, búðu til sérhæfð kerfi og margt fleira.
* Viðbótar stafræn lausn frá Miele & Cie. KG. Virkni getur verið mismunandi eftir módeli og landi. Þú þarft að samþykkja skilmála og persónuverndarstefnu Miele appsins fyrir stafrænar vörur og þjónustu. Miele áskilur sér rétt til að breyta eða hætta stafrænni lausn hvenær sem er.
-ecbb3b7c-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Áreiðanleiki tryggður
Ábyrgð á Miele mótor
25 ára ábyrgð er á mótorum þvottavéla, þurrkara og þvottavéla-þurrkara frá Miele sem seldir eru hjá Eirvík, þar innifalin tveggja ára lögbundin ábyrgð. *
* Miele tæki sem keypt eru hjá Eirvík eru með 5 ára ábyrgð og því fylgir enginn auka kostnaður. Miele þvottavélar sem keyptar eru hjá Eirvík eftir 1. október 2025 eru auk þess með 25 ára ábyrgð á mótor – skrá þarf tæki á eftirfarandi slóð til að virkja mótorábyrgð: https://www.miele.com/en/com/iceland-eirvik-heimilistaeki-ehf-4514.htm. Professional tæki og ”Litlu risar” eru undanskilin mótorábyrgð.

Verndaðu fötin þín í tromlunni
Honeycomb tromla
Einstök uppbygging tromlunnar gegnir mikilvægu hlutverki í umhirðu þvottarins. Þökk sé sérstakri lögun hennar myndast vatnslag á milli tromlunnar og efnisins þegar hún snýst. Þvotturinn rennur þar af leiðandi varlega um tromluna sem fer betur með þræði textílefnanna og flíkurnar halda gæðum sínum til lengri tíma.

Bættu við eða fjarlægðu stakar flíkur
AddLoad
Þú getur bætt við sokki sem gleymdist eða annarri flík á þægilegan hátt á meðan á þvottakerfi stendur, þökk sé AddLoad. Settir þú óvart svarta skyrtu með hvíta þvottinum fyrir mistök? Þá getur þú fjarlægt hana á þægilegan hátt á meðan á þvottakerfi stendur. Valið þvottakerfi mun halda áfram sjálfkrafa eftir það.

Sérstakt kerfi sem hreinsar burt ló
Sjálfvirk hreinsun á ló
Ló sem verður eftir í vélinni þegar þurrkun er lokið, er algerlega hreinsuð í burtu með þessu kerfi. Þéttirinn, botn sökkulsins og tromlan losna algerlega við alla ló á nokkrum mínútum. Þar af leiðandi verður algerlega komist hjá mislitun þvottar vegna smits frá gamalli ló.

Styttir tímalengd og minnkar rafmagnsnotkun við þurrkun
Thermo spin
Áður en þurrkun hefst er þvottinum velt og á hann blásið heitu lofti á meðan vinduhraði er aukinn jafnt og þétt. Þetta minnkar vatnsmagn í þvottinum áður en þurrkunarkerfi hefst, sparar tíma og rafmagn og tryggir hagkvæmni við þurrkun.

Hraðvirkur og hagkvæmur
Orkunýtni
Miele combi þvottavélar & þurrkarar eru sparneytnir bæði á tíma og orku. Öll módel ná hæsta orkunýtingarflokki A varðandi þvott. Þurrkun styðst við hefðbundna tækni þéttingar fyrir skamman þurrkunartíma.

Hagkvæmur, öflugur og viðhaldsfrír
ProfiEco mótor *
ProfiEco mótorinn frá Miele er öflugur inverter-mótor sem notar orku á skilvirkan og hljóðlátan hátt. Mótorinn er næstum viðhaldsfrír, þökk sé rafeindastýringu og því að hann er kolalaus. Þessi nýstárlega hönnun tryggir áralanga skilvirka, áhyggjulausa og þægilega þvottameðhöndlun.
* Einkaleyfi EP 2 840 679

Öryggi þökk sé viðbótar skynjara
Vatnsvarnarkerfi (WCS)
Vatnsvarnarkerfið (WCS) verndar þvottavélina gegn vatnsskemmdum. Skynjari fylgist með vatnsrennsli inn á vélina. Vélin hættir sjálfkrafa að taka inn á sig vatn ef venjuleg vatnshæð næst ekki. Ef vatnsleki verður í vélinni safnast hann í botni sökkulsins, inntakslokinn í vélinni lokast og vatninu á botni sökkulsins er dælt í burtu. Flotrofi í affallsbakka skynjar einnig ef leki á sér stað.
