Fara í meginmál

Vörunúmer: SCB92MN8

Smeg

Eldavél með gasbrennurum - Classic

Svört 90 cm breið eldavél úr klassísku línu Smeg. Vélin er með 2 rafmagnsofnum, 5 gasbrennurum og geymsluhólfi. 

489.990 kr.

Sérpöntun

Eldavél með gasbrennurum - Classic

Smekkleg hönnun sem einkennist af ryðfríu stáli og hreinum línum 

Fyrsta vörulínan sem Smeg hannaði í samstarfi við arkítektinn Guido Canali fékk nafnið Classica. Ryðfrítt stál er aðalsmerki línunnar og hvernig það er notað á afskaplega smekklegan og nákvæman hátt. Tækin í Classic línunni eru með einkennandi stjórntökkum og handföngum, sem minna um margt á tæki í atvinnueldhúsum. Þau eru hagnýt og fjölhæf sem endurspeglar, auk glæsilegrar útlitshönnunar, gæði þeirra. Hönnunin einkennist af beinum línum, einföldum formum og er í senn hrein og fáguð. Skemmtilega tímalaus stíll með nútímalegu ívafi sem sómir sér vel í flestum gerðum eldhúsa.

Eldavél með gasbrennurum - Classic

Skemmtileg eldavél fyrir fjölhæfa eldamennsku 

Möguleikarnir eru óteljandi og mögulegt að elda marga rétti við mismunandi aðstæður en á sama tíma í vélinni. Ofnarnir eru tveir og tryggir blástursvifta jafna hitadreifingu og eldun matvæla í ofnrýminu. Fyrir neðan ofnana er síðan útdraganleg geymsluskúffa þar sem tilvalið er að geyma bökunarplötur og grindur. Eldavélin er auk þess kæld á öllum hliðum sem tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. 

Eldavél með gasbrennurum - Classic

Eldavél með gasbrennurum 

Á vélinni eru fjölbreyttar stærðir gasbrennara með emeleringu fyrir mismunandi notkun og sterkbyggðar pottjárnsgrindur. Litlir gasbrennarar gera þér kleift að elda viðkvæm matvæli hægt og rólega, á meðan öflugir WOK brennarar henta fullkomlega fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Kveikt er á loga á þægilegan hátt með rafmagnskveikju. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á tilheyrandi brennara. Helluborð eldavélarinnar er djúpt og sérstaklega hannað til þess að geta tekið við dálitlum vökva sem getur flætt upp úr pottum og pönnum við eldamennsku. Auk þess er vélin með öryggisventli sem lokar fyrir gasflæði til vélarinnar t.d. ef gaslogi slokknar tímabundið vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks.

Eldavél með gasbrennurum - Classic

Einföld þrif fyrir hámarks hreinlæti 

Vapor hreinsikerfið notar gufu til þess að losa um matarleifar og óhreinindi af yfirborði ofnrýmisins, þannig að auðvelt sé að þrífa leifarnar í burtu. Ofnrýmið er með yfirborði úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auðvelt er að setja toppgrill ofnsins niður og þrífa loftið þar fyrir ofan. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðarinnar og þrífa á milli þeirra. Allt ofantalið auðveldar þína vinnu við þrif á ofninum.