
Tækifæri til að endurupplifa hlýleika og nærveru eldhúsa fyrri tíma
Fáguð og virðuleg hönnun, innblásin af klassískum nýlendu stíl, sem ber mann aftur til fortíðar. Tækin í Colonial línunni endurskapa þá hlýlegu stemningu og notalegu nærveru sem mörgum finnst einkennandi fyrir eldhús fyrri tíma. Línan er hönnuð fyrir fólk sem kann að meta þokkafullan, vandaðan og vingjarnlegan stíl og vill skapa einstakt andrúmsloft í eldhúsinu. Smekkleg hönnun fyrir alla sem vilja bæta við vott af fáguðum glæsibrag inn í hjarta heimilisins.

Blásturofn með vapor hreinsikerfi
Eldavélin er 60 cm á breidd og tryggir blástursvifta jafna hitadreifingu á öllum fimm hæðum ofnrýmisins. Vapor hreinsikerfi tryggir einföld þrif. Það notar gufu til þess að losa um matarleifar og óhreinindi af yfirborði ofnrýmisins, þannig að auðvelt sé að þrífa leifarnar í burtu. Eldavélin er kæld á öllum hliðum og helst stjórnborð, handföng auk aðliggjandi skápa þar af leiðandi alltaf kalt viðkomu.

Eldavél með gasbrennurum
Á vélinni eru fjölbreyttar stærðir gasbrennara með emeleringu fyrir mismunandi notkun og sterkbyggðar pottjárnsgrindur. Litlir gasbrennarar gera þér kleift að elda viðkvæm matvæli hægt og rólega, á meðan öflugir WOK brennarar henta fullkomlega fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Kveikt er á loga á þægilegan hátt með rafmagnskveikju. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á tilheyrandi brennara. Helluborð eldavélarinnar er djúpt og sérstaklega hannað til þess að geta tekið við dálitlum vökva sem getur flætt upp úr pottum og pönnum við eldamennsku. Auk þess er vélin með öryggisventli sem lokar fyrir gasflæði til vélarinnar t.d. ef gaslogi slokknar tímabundið vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks.
