-278b58bd-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Litir Portofino línunnar lífga upp á eldhúsið
Innblástur línunnar kemur frá samnefndu þorpi sem er staðsett á jaðri Tigullio flóa á Ítalíu. Helsta kennileiti þorpsins er hrífandi smábátahöfn umkringd ólífutrjám og endurspeglar litapaletta Portofino línunnar þessi blæbrigði Miðjarðarhafsins. Línan einkennist af fullkomnu jafnvægi skærra lita á móti ryðfríu stáli og færir hún bæði rómantík og gleði inn í eldhúsið.

Skemmtileg eldavél fyrir fjölhæfa eldamennsku
Möguleikarnir eru óteljandi og hægt að elda marga rétti við mismunandi aðstæður en á sama tíma í eldavélinni. Ofnarnir eru tveir og tryggja blástursviftur jafna hitadreifingu og eldun matvæla á öllum fimm hæðum beggja ofnrýma. Fullkomin nákvæmni við eldun t.d. kjöts, fisks og alifuglakjöts næst með notkun kjarnhitamælis sem er staðsettur í aðalofni. Þökk sé DirectSteam tækni er hægt að nota raka í eldun og bakstri í aukaofni. Þannig fá brauð og bakkelsi fullkomna brúnun en haldast mjúk fyrir innan skorpuna og kjöt fær dásamlega harða skorpu að utan en helst mjúkt og safaríkt fyrir innan hana. Fyrir neðan ofnana er síðan útdraganlegar geymsluskúffur þar sem tilvalið er að geyma bökunarplötur og grindur.

Áreynslulaus þrif sem gera lífið auðveldara
Aðalofn eldavélarinnar er með Pyrolytic sjálfhreinsi. Kerfið hitar ofnrýmið upp í 500°C og breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborðinu. Þetta auðveldar þrif á ofninum og þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba hann að innan með sterkum hreinsiefnum. Aukaofninn er með Vapor hreinsikerfi sem notar gufu til þess að losa um matarleifar og óhreinindi af yfirborði ofnrýmisins, þannig að auðvelt sé að þrífa leifarnar í burtu. Toppgrill aukaofnsins er auðvelt að losa niður til þess að þrífa loftið þar fyrir ofan. Yfirborð beggja ofnrýma er úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðanna og þrífa á milli þeirra.

Eldavél með gasbrennurum, spanhellum og Teppanyaki grillhellu
Á vélinni er Teppanyaki grillhella, mismunandi stærðir gasbrennara með emeleringu, tvær spanhellur og sterkbyggðar pottjárnsgrindur. Lítill gasbrennari gerir þér kleift að elda viðkvæm matvæli hægt og rólega, á meðan öflugur WOK brennari hentar fullkomlega fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Nákvæm hitastjórnun næst á þægilegan hátt með spanhellum, en þær henta vel fyrir flókna eldamennsku, til dæmis ef réttur þarf að krauma eða malla í lengri tíma. Spanhellurnar eru auk þess með sveigjanlegu MultiZone eldunarsvæði. Þú getur notað MultiZone svæði sem tvær sjálfstæðar hellur eða sameinað í eitt stórt svæði, og þannig komið fyrir hvort heldur stökum potti eða stórri ofnpönnu.

Aukið öryggi og hámarks þægindi
Eldavélin er með mjúklokun sem dempar hreyfinguna þegar hurðum ofnanna er lokað. Hurðirnar lokast þar af leiðandi bæði varlega og hljóðlega. Útdraganlegar brautir veita ákjósanlegt aðgengi að matnum í ofninum. Þær gera þér kleift að snúa grænmetinu eða dreypa feiti á steikina á þægilegan hátt og í öruggri fjarlægð frá heitu ofnrýminu. Brautirnar eru útdraganlegar að fullu og auðvelt er að draga plötur og grindur út úr ofnunum án þess að eiga á hættu að brenna sig. Eldavélin er auk þess kæld á öllum hliðum sem tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Allt ofantalið veitir aukið öryggi, þægindi við notkun og verndar gegn bruna.
