
Smekkleg hönnun sem einkennist af ryðfríu stáli og hreinum línum
Fyrsta vörulínan sem Smeg hannaði í samstarfi við arkítektinn Guido Canali fékk nafnið Classica. Ryðfrítt stál er aðalsmerki línunnar og hvernig það er notað á afskaplega smekklegan og nákvæman hátt. Tækin í Classic línunni eru með einkennandi stjórntökkum og handföngum, sem minna um margt á tæki í atvinnueldhúsum. Þau eru hagnýt og fjölhæf sem endurspeglar, auk glæsilegrar útlitshönnunar, gæði þeirra. Hönnunin einkennist af beinum línum, einföldum formum og er í senn hrein og fáguð. Skemmtilega tímalaus stíll með nútímalegu ívafi sem sómir sér vel í flestum gerðum eldhúsa.
%2520samsett%2520mynd-c3af06b5-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Rúmgóður blástursofn
Eldavélin er 90 cm á breidd með stórum og rúmgóðum ofni og geymsluskúffu þar fyrir neðan þar sem tilvalið er að geyma bökunarplötur og grindur. Tvær blástursviftur tryggja jafna hitadreifingu á öllum fimm hæðum ofnrýmisins. Fullkomin nákvæmni við eldun t.d. kjöts, fisks og alifuglakjöts næst síðan með notkun kjarnhitamælis. Eldavélin er kæld á öllum hliðum og helst stjórnborð, handföng auk aðliggjandi skápa þar af leiðandi alltaf kalt viðkomu.

Eldavél með spanhellum
Hiti myndast beint í botni pottsins þegar hann kemst í snertingu við hellu sem kveikt er á, spanhelluborðið skynjar stærð hans sjálfkrafa og tryggir þannig lágmarks orkunotkun. Aflauki er á öllum hellum, þær eru einstaklega auðveldar í þrifum og notkun örugg. Eftir að slökkt hefur verið á helluborðinu sýna gaumljós hvaða hellur eru ennþá heitar. Yfirhitavörn slekkur á hitun eldunarsvæða ef álag verður of mikið og áður en keramikglerið eða aðrir hlutar helluborðsins ofhitna. Auk þess slekkur eldavélin á hellu ef kveikt er á henni á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma.

Einföld þrif fyrir hámarks hreinlæti
Eldavélin er úr ryðfríu stáli sem er framleitt með þeim hætti að fingraför sjást að mjög litlu leyti ef þá einhverju á yfirborðinu. Ofninn er með Vapor hreinsikerfi sem notar gufu til þess að losa um matarleifar og óhreinindi af yfirborði ofnrýmisins, þannig að auðvelt sé að þrífa leifarnar í burtu. Ofnrýmið er með yfirborði úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðarinnar og þrífa á milli þeirra. Allt ofantalið auðveldar þína vinnu við þrif á ofninum.
