Fara í meginmál

Vörunúmer: CPF9IPAN

Smeg

Eldavél með spanhellum & Pyro - Portofino

Eldavél úr Portofino línu Smeg sem er 90 cm á breidd, með stórum sjálfhreinsandi rafmagnsofni, 5 spanhellum og geymsluhólfi. Ólíkt mörgum eldavélum eru hliðar Portofino eldavéla litaðar. Eldavélarnar koma þar af leiðandi frábærlega vel út bæði þegar þær eru settar á milli innréttingaskápa og einnig þegar þær eru frístandandi.

1.029.990 kr.

Sérpöntun

Eldavél með spanhellum & Pyro - Portofino

Litir Portofino línunnar lífga upp á eldhúsið 

Innblástur línunnar kemur frá samnefndu þorpi sem er staðsett á jaðri Tigullio flóa á Ítalíu. Helsta kennileiti þorpsins er hrífandi smábátahöfn umkringd ólífutrjám og endurspeglar litapaletta Portofino línunnar þessi blæbrigði Miðjarðarhafsins. Línan einkennist af fullkomnu jafnvægi skærra lita á móti ryðfríu stáli og færir hún bæði rómantík og gleði inn í eldhúsið.

Eldavél með spanhellum & Pyro - Portofino

3 blástursviftur í rúmgóðu ofnrými

Eldavélin er 90 cm á breidd og með stórum, rúmgóðum blástursofni. Þrjár blástursviftur eru í ofnrými sem tryggja frábæra eldunarhæfni. Stóru blástursvifturnar tvær til beggja hliða dreifa loftinu meðfram ytri jaðri ofnrýmisins, á meðan smærri viftan í miðjunni myndar lóðrétta hringiðu heits lofts. Hitadreifingin í ofnrýminu verður þar af leiðandi jöfn og eldun matvæla eins á öllum fimm hæðum ofnsins.

Eldavél með spanhellum & Pyro - Portofino

Eldavél með spanhellum

Hiti myndast beint í botni pottsins þegar hann kemst í snertingu við hellu sem kveikt er á, spanhelluborðið skynjar stærð hans sjálfkrafa og tryggir þannig lágmarks orkunotkun. Aflauki er á öllum hellum, þær eru einstaklega auðveldar í þrifum og notkun örugg. Eftir að slökkt hefur verið á helluborðinu sýna gaumljós hvaða hellur eru ennþá heitar. Yfirhitavörn slekkur á hitun eldunarsvæða ef álag verður of mikið og áður en keramikglerið eða aðrir hlutar helluborðsins ofhitna. Auk þess slekkur eldavélin á hellu ef kveikt er á henni á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma.

Eldavél með spanhellum & Pyro - Portofino

Notendavænt stjórnborð og elektrónísk hitastýring

Eldavélin er með elektrónískri hitastýringu sem heldur nákvæmu hitastigi í ofnrýminu og gefur möguleika á fullkominni eldun rétta sem eru viðkvæmir fyrir hitabreytingum. Sjálfvirk kerfi eru einnig til staðar sem gera þér kleift að elda eins og atvinnumatreiðslumaður og tryggja árangursríka eldun í hvert sinn. 

Eldavél með spanhellum & Pyro - Portofino

Áreynslulaus þrif sem gera lífið auðveldara 

Pyrolytic sjálfhreinsikerfið hitar ofnrýmið upp í 500°C og breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborðinu. Þetta auðveldar þrif á ofninum og þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba hann að innan með sterkum hreinsiefnum. Ofnrýmið er með yfirborði úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auðvelt er að setja toppgrill ofnsins niður og þrífa loftið þar fyrir ofan. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðarinnar og þrífa á milli þeirra.

Eldavél með spanhellum & Pyro - Portofino

Aukið öryggi og hámarks þægindi

Blástursofninn er með mjúklokun sem dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Hurðin lokast þar af leiðandi bæði varlega og hljóðlega. Útdraganlegar brautir veita ákjósanlegt aðgengi að matnum í ofninum. Þær gera þér kleift að snúa grænmetinu eða dreypa feiti á steikina á þægilegan hátt og í öruggri fjarlægð frá heitu ofnrýminu. Brautirnar eru hálf-útdraganlegar og auðvelt er að draga plötur og grindur út úr ofninum án þess að eiga á hættu að brenna sig. Eldavélin er auk þess kæld á öllum hliðum sem tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Allt ofantalið veitir aukið öryggi, þægindi við notkun og verndar gegn bruna.

Eldavél með spanhellum & Pyro - Portofino

Alþjóðleg verðlaun 

Eldavélin hefur fengið góðar viðtökur og hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna, Good Design Awards.