
Ástríða fyrir hefðum og smáatriðum
Fagurfræði Victoria línunnar er tileinkuð fólki sem vill hlýlegt eldhúsrými sem tekur vel á móti því. Þeim sem vilja skapa andrúmsloft sem er uppfullt af friðsæld, gleði og hlátri, þar sem tíminn virðist standa í stað. Innblástur línunnar kemur frá "Elisabeth" eldavélinni, þeirri fyrstu sem Smeg framleiddi árið 1948 og töfrar fram nostalgíska sveitarómantík. Línan sameinar tímalausa, klassíska hönnun og einstaka fegurð.

Skemmtileg eldavél fyrir fjölhæfa eldamennsku
Möguleikarnir eru óteljandi og mögulegt að elda marga rétti við mismunandi aðstæður en á sama tíma í vélinni. Ofnarnir eru þrír, þar af tveir blástursofnar og einn grillofn. Blástursviftur tryggja jafna hitadreifingu og eldun matvæla á öllum fjórum hæðum blástursofnanna. Grillofninn er minni og hentar fullkomlega fyrir matvæli sem á að grilla eða gratínera. Eldavélin er kæld á öllum hliðum og helst stjórnborð, handföng auk aðliggjandi skápa þar af leiðandi alltaf kalt viðkomu.

Eldavél með spanhellum
Hiti myndast beint í botni pottsins þegar hann kemst í snertingu við hellu sem kveikt er á, spanhelluborðið skynjar stærð hans sjálfkrafa og tryggir þannig lágmarks orkunotkun. Aflauki er á öllum hellum, þær eru einstaklega auðveldar í þrifum og notkun örugg. Eftir að slökkt hefur verið á helluborðinu sýna gaumljós hvaða hellur eru ennþá heitar. Yfirhitavörn slekkur á hitun eldunarsvæða ef álag verður of mikið og áður en keramikglerið eða aðrir hlutar helluborðsins ofhitna. Auk þess slekkur eldavélin á hellu ef kveikt er á henni á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma.

Einföld þrif fyrir hámarks hreinlæti
Vapor hreinsikerfið notar gufu til þess að losa um matarleifar og óhreinindi af yfirborði ofnrýmisins, þannig að auðvelt sé að þrífa leifarnar í burtu. Ofnrýmið er með yfirborði úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auðvelt er að setja toppgrill ofnsins niður og þrífa loftið þar fyrir ofan. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðarinnar og þrífa á milli þeirra. Allt ofantalið auðveldar þína vinnu við þrif á ofninum.
