Fara í meginmál

Vörunúmer: PRF0142723

Elica

ERA C 60

Glæsileg vifta frá Elica úr ryðfríu stáli og gleri. ERA C er með LED lýsingu, er ætluð til innbyggingar í efri skápa og mögulegt er að hafa hana jafnt í útblæstri sem og hringblæstri.

Hönnun: ELICA DESIGN CENTER

37.990 kr.

Ekki til á lager

ERA C 80

Innbyggð vifta fyrir mínimalísk eldhús

ERA C er algerlega innbyggð vifta sem ætluð er til uppsetningar í efri skápa. Viftan hentar einstaklega vel inn í eldhús sem eru með mínimalískum stíl og er hönnuð af Elica Design Center. ERA C er úr ryðfríu stáli og mögulegt er að setja hana upp annað hvort fyrir útblástur eða hringblástur.

ERA C 80

Náttúruleg og áhrifarík LED lýsing

Lýsingu og afli viftunnar er stjórnað með einföldum þrýstitökkum. LED lýsingin gefur náttúrulega og áhrifaríka birtu sem skín beint niður á helluborðið og veitir bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna. Auðvelt er að fjarlægja filtera og setja þá aftur á sinn stað. Kolafilter er notaður ef ERA C er sett upp fyrir hringblástur.