Fara í meginmál

Vörunúmer: B4847D

Miele

FashionMaster strauborð með gufubursta

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

FashionMaster strauborð með skjá og gufubursta fyrir fullkomna straujun og hámarks þægindi.  Gufan sem streymir frá strauboltanum með vaxkökumynstrinu dreifist jafnt yfir fatnaðinn og hjálpar strauboltanum að renna mjúkt og örugglega yfir þvottinn. Gufuþrýstingur strauborðsins er hár eða 4,0 bör sem þýðir að einungis er þörf á að straua þykk efni á annarri hliðinni en ekki báðum. Stauborðið er með tveimur innbyggðum viftum sem geta hvort heldur sogað efni föst á strauborð eða blásið efni upp til að mynda loftpúða. Hreyfanlegur gufubursti fylgir með sem er sérhannaður fyrir gufun á hangandi fatnaði. Uppsetning FashionMaster strauborðsins gæti ekki verið einfaldari, einungis tvö handtök þarf til þess að setja strauborðið upp og taka það niður.

599.990 kr.

Ekki til á lager

FashionMaster strauborð með gufubursta

Straubolti með vaxkökumynstri

Einstök hönnun

Kostir Miele Honeycomb tromlu með vaxkökumynstri eru innblástur hönnunar FashionMaster strauboltans. Járn FashionMaster strauboltans er einnig með vaxkökumynstri, götin eru mörg og staðsett með jöfnu millibili á öllu yfirborði járnsins sem gerir það að verkum að gufudreifing verður hraðari en á járni venjulegs straubolta. Gufan myndar auk þess filmu sem gerir strauboltanum kleift að renna mjúklega yfir þvottinn á áreynslulausan hátt. Fullkomin straujun með hámarks þægindum.

FashionMaster strauborð með gufubursta

1-2 tækni til að lyfta upp strauborði

Áreynslulaust

Tvö handtök, engin áreynsla. Uppsetning FashionMaster strauborðsins, sem samanstendur af straubolta, gufurafal og strauborði, gæti ekki verið einfaldari. Með 1-2 tækni þarf einungis tvö handtök til þess að setja strauborðið upp og taka það niður. Þegar borðinu er aflæst, rennur það beint í lárétta stöðu sem er töfrum líkast. Þú sléttir ekki aðeins þvottinn þinn með FashionMaster, heldur losnar þú einnig við bakálag.

FashionMaster strauborð með gufubursta

Fjölmargar hæðarstillingar strauborðs í notkun

Nákvæm vinnuhæð 

Þú getur stillt strauborðið nákvæmlega í þá vinnuhæð sem þér hentar, allt frá 83 til 102 cm. Hæðarstillingum er haldið með gasþrýstingi og eru þær óendanlega margar. Þar af leiðandi er einstaklega þægilegt að finna þá fullkomnu vinnuhæð sem hentar hverjum og einum notanda. 

FashionMaster strauborð með gufubursta

Gufuþrýstingur

Gufan gerir gæfumuninn

Straujun með FashionMaster strauborði skilar flíkum fullkomlega pressuðum. Þökk sé 4 bar gufuþrýstingi og samfelldu gufumagni upp á 100 g/mín pressast þvotturinn jafn vel og hann gerir í bestu fatahreinsunum. Þurr gufan smýgur auðveldlega í gegnum þykk textílefni og styttir þar af leiðandi tímalengd straujunar. Þú velur hvort þú straujar með gufupústum eða samfelldri gufu með því að ýta á gufuhnapp á stauboltanum.

FashionMaster strauborð með gufubursta

Gufubursti 

Gufaðu hangandi flíkur með auðveldum hætti

Mögulegt er að slétta burt krumpur og brot út jökkum, kjólum eða jafnvel gluggatjöldum með gufuburstanum. Gufuburstinn er helmingi léttari er strauboltinn, en er með jafnháum gufuþrýstingi og jafnmiklu gufumagni. Gufuburstinn er með áfestanlegum kransi með hárum, sem hjálpar bæði til við að slétta þræði textílefna og tryggir auk þess fullkomna lengd milli gufuburstans og textílefnanna. Gufuburstinn er hreyfanlegur og hægt er að nota hann með auðveldum hætti þó búið sé að fella FashionMaster strauborðið saman í geymslustöðu. 

FashionMaster strauborð með gufubursta

Virkt strauborð

Þægileg virkni fyrir auðvelda straujun

Strauborðið er með innbyggðum viftum og tekur virkan þátt í straujun. Uppblástur textílefna hjálpar þér að slétta þvottinn varlega; sog þvotts niður á strauborðið eykur áhrif gufunnar. Gufuhnappur á straubolta kveikir á uppblæstri eða sogi á strauborði og slekkur sjálfkrafa á viftunum þegar þú tekur þér hvíld frá straujun. Seinustu stillingar eru geymdar í minni og virkjast sjálfkrafa þegar gufan er notuð aftur.

FashionMaster strauborð með gufubursta

Straujun á marglaga textílefni

Tímasparnaður við straujun 

Sparaðu áreynslu og tíma. Með FashionMaster er óþarfi að strauja marglaga og þykkar flíkur á báðum hliðum, heldur nóg að strauja þær á annarri hliðinni. Mikið magn gufu og hár gufuþrýstingur þýðir að jafnvel þykk efni eins og gallaefni verða fullkomlega slétt við straujun á annarri hliðinni.

FashionMaster strauborð með gufubursta

Vatnstankur

Einfaldur og þægilegur

Viltu strauja mikið af þvotti og fylla á vatnstank á milli, eftir þörfum? Ekkert mál, mögulegt er að fjarlægja vatnstank FashionMaster strauborðsins hvenær sem er á meðan á straujun stendur og fylla hann með kranavatni. Flöt hönnun vatnstanks er notendavæn og leyfir áfyllingu undir lágum vatnskrönum. Tankurinn tekur 1.25 lítra sem gerir þér kleift að gufustrauja stöðugt í um það bil einn klukkutíma milli áfyllinga.

FashionMaster strauborð með gufubursta

Hjólabúnaður

Hreyfanlegur og fimur

Mögulegt er að staðsetja FashionMaster strauborðið hvar sem er á heimilinu, en það stendur með traustum hætti í geymslustöðu og þarf engan stuðning aukalega. Auðvelt er að draga strauborðið á eftir sér og fylgir það hreyfingum þínum á áreynslulausan hátt. Þröskuldar, teppabrúnir og jafnvel ein eða tvær tröppur verða hægðarleikur, þökk sé mjúkum og fimum hjólabúnaði strauborðsins.

FashionMaster strauborð með gufubursta

ComfortZone

Stór strauflötur

Mögulegt er að koma löngum buxnaskálmum fyrir á strauborðsfletinum, sem er 120 x 40 cm. Einnig er hægt að strauja allan helming framhliðar á blússu eða skyrtu í einu án þess að þörf sé á að færa flíkina út stað. Frábær tímasparandi eiginleiki.

FashionMaster strauborð með gufubursta

Hentugt viðhald

Sjálfvirk afkölkun og skolun tækis

Skolun tækis er sjálfvirk og fer fram reglulega. Með skolun eru leifar steinefna, sem verða eftir við uppgufun, fjarlægðar úr gufurafal sem tryggir samfellda virkni tækis. Tækið ákvaðrar tímalengd milli skolanna sjálfkrafa út frá magni uppgufaðs vatns. Eina sem þarf að gera er að tæma vatnstankinn. Afkölkun er einnig sjálfvirk. Eftir að rétt vatnsharka hefur verið valin, minnir tækið þig tímanlega á hvenær afkölkunar er þörf. Afkölkun er sett af stað með einni snertingu, tækið lætur þig vita hvenær þú átt að bæta við afkölkunartöflu og sér sjálfkrafa um framhaldið.

FashionMaster strauborð með gufubursta

Sog eða uppblástur

Sog fyrir fullkomna sléttun eða uppblástur fyrir meðhöndlun viðkvæmra efna

Strauborðið er með tveimur innbyggðum viftum sem geta bæði sogað textílefni föst á strauborðið eða blásið þau upp. Þegar vifturnar soga flík niður á strauborðið helst hún á sínum stað við straujun. Þessi eiginleiki tryggir að gufan flæðir djúpt í gegnum flíkina, eykur árangur við straujun og minnkar þéttingu. Þegar vifturnar blása flík upp á strauborðinu myndast loftpúði á milli hennar og strauborðsins. Flíkur með t.d. blúndum og úr kasmírull halda lögun sinni, en þetta hentar fyrir allan þvott sem á að slétta en ekki fletja. Með uppblæstri er einnig komið í veg fyrir að saumar sem eru innan á flíkum sjáist á þeim framanverðum að straujun lokinni

FashionMaster strauborð með gufubursta

Viðloðunarfrí hlíf fyrir straubolta 

Fyrir vandasamari tilfelli

Allar áskoranir verða hægðarleikur með FashionMaster strauborði, hvort sem um ræðir pallíettur, áþrykkt mynstur eða mjög viðkvæm textílefni. Mögulegt er að strauja beint yfir alls kyns viðkvæmar skreytingar með notkun á viðloðunarfrírri hlíf sem fest er neðan á strauboltann. Teflon húðin verndar dökk textílefni gegn því að skínandi blettir myndist við straujun og óþarfi er að strauja efni á röngunni.

FashionMaster strauborð með gufubursta

CoolDown og AutoOff

Aukið öryggi

Öryggið sett á oddinn: Ef strauboltinn er ekki notaður í meira en 3 mínútur þá slekkur strauborðið sjálfkrafa á honum. Þegar strauboltinn er hreyfður aftur, kveikir strauborðið sjálfkrafa á honum á nýjan leik. Auk þessa slekkur strauborðið algerlega á sér til öryggis ef hvorki straubolti né gufubursti hefur verið notaður í yfir 25 mínútur.