Fara í meginmál

Vörunúmer: 24181

Jura

Ferskvatnstenging við kaffivél

Að fylla á vatnstankinn getur orðið þreytandi þegar hellt er upp á mikið kaffi í kaffivélinni á hverjum degi. Þess vegna hefur Jura hannað ferskvatnstengingu þar sem hægt er að tengja kaffivélina við vatnsinntak. Ferskvatnstengingin sér þannig um að fylla sjálfkrafa á vatnstankinn.

Mælt er með að fá sérþjálfaðan tæknimann til þess að tengja búnaðinn þegar hann er tekinn til notkunar í fyrsta skipti. Að því loknu er lítið mál fyrir notanda að aftengja og tengja aftur búnaðinn sjálfur eftir þörfum.


Passar í eftirfarandi Professional kaffivélar úr X-línu

  • X10
  • X8
  • X6

84.990 kr.

Ekki til á lager