Fara í meginmál

Vörunúmer: 24019

Jura

Flóunarkanna & mjólkurfroðari

Mjólkurflóarinn frá Jura er hraðvirk, auðveld og hreinleg leið til þess að búa til fullkomna, flauelsmjúka mjólkurfroðu. Tilvalið fyrir kalda drykki, eins og latte frio og kalt súkkulaði auk hefðbundnari drykkja eins og cappuccino.

Hönnunin passar einstaklega vel við klassísku línuna frá Jura, er hin fullkomna viðbót við hvaða kaffivél sem er og ómissandi hjálparkokkur fyrir alla sem elska mismunandi mjólkurdrykki. Notkun er einföld og með einum takka má búa til kalda, volga og heita mjólkurfroðu á skömmum tíma.

19.990 kr.

Ekki til á lager

Flóunarkanna & mjólkurfroðari

Fjölbreytt úrval mjólkurdrykkja

Loft- og kremkennd mjólkurfroða gefur vinsælum drykkjum þann frísk- og léttleika sem þeir þurfa, hvort heldur sem lokaskreyting eða sem lykil innihaldsefni. Sjálfvirka flóunarkannan töfrar fram drykki sem eru algert lostæti úr kaldri, hitaðri eða heitri mjólk. Drykki fyrir allar árstíðir, hvort sem um ræðir heitt súkkulaði á vetrarkvöldum, kaldan ávaxta Romanoff á vorin, frískandi kaldan flat white á heitum sumardögum eða kalt chai latte að hausti til. Lítill uppskriftabæklingur fylgir með flóunarkönnunni sem veitir innblástur fyrir alls konar drykki og eru ímyndunaraflinu engin takmörk sett.

Flóunarkanna & mjólkurfroðari

Köld mjólkurfroða með einni snertingu

Einfaldlega ýttu á hnappinn einu sinni, tvisvar eða þrisvar og köld, hituð eða heit mjólk er freydd í mjólkurtankinum. Sjálfskýrandi tákn lýsast upp og sýna hvað hefur verið valið.

Flóunarkanna & mjólkurfroðari

Falleg hönnun

Útlit og áferð sjálfvirku flóunarkönnunar endurspeglar klassíska JURA hönnun. Hönnunin tryggir hámarks hreinlæti og flóunarkönnuna er auk þess einfalt að handleika. Auðvelt er að grípa um könnuna á mjúku og hitaþolnu gúmmí og fáguð króm smáatriði heilla notandann. Viðhaldslítill efniviður eins og ryðfrítt stál og hringlaga formið gera mjólkurtankinn mjög auðveldan í þrifum.

Flóunarkanna & mjólkurfroðari

Lítil og nett

Rafmagnssnúruna og aukahluti er hægt að geyma á þægilegan hátt í neðsta hluta flóunarkönnunar. Kannan, sem er 13 x 21 cm, passar líka fullkomlega inn í hvaða eldhússkáp sem er.