Fara í meginmál

Vörunúmer: FNE5207

Liebherr

Frístandandi frystiskápur með NoFrost - Pure

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Frístandandi frystiskápur úr Pure línu Liebherr. Skápurinn er með sjö skúffum, þar af einni hárri SpaceBox skúffu. NoFrost kælitækni tryggir að frystinn þarf ekki að affrysta.

309.990 kr.

Ekki til á lager

Frístandandi frystiskápur með NoFrost - Pure

Frístandandi frystiskápur 

Skápurinn er frístandandi og sómir sér vel stakur. Hönnun er einföld, klassísk og hafin yfir tískustrauma. Glansandi hvítmálað yfirborð skápsins er auk þess harðgert og auðvelt í þrifum. Skápinn er einnig hægt að setja inn í 60 cm breiðan innréttingarskáp og einungis hurð skápsins stendur þá fram úr innréttingunni. Skápurinn kemur hægri hengdur en mögulegt er að skipta um hurðaropnun.

Frístandandi frystiskápur með NoFrost - Pure

Snertiskjár 

Snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápsins með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðfrystingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjánum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápsins óviljandi.

Frístandandi frystiskápur með NoFrost - Pure

SpaceBox

Komdu fyrirferðamiklum hlutum fyrir í Liebherr skápnum þínum: XL kalkúnn eða marglaga ísterta þurfa einfaldlega meira rými. Skápurinn er með SpaceBox einmitt fyrir þessar aðstæður. Skúffan er 250 mm há sem býður upp á mikið aukarými, jafnvel fyrir fyrirferðamikil frosin matvæli. Mjög gagnlegt fyrir sveigjanlega geymslu matvæla.

Frístandandi frystiskápur með NoFrost - Pure

Skúffa sem hallast á þægilegan hátt

Hvað leynist í efstu skúffu frystiskáps er oft töluverð ráðgáta vegna þess að erfitt er að sjá hvað er í henni. Þetta á ekki við um Liebherr skápinn vegna þess að efsta skúffa hans hallast niður þegar hún er opnuð. Þessi eiginleiki veitir fullkomna yfirsýn yfir innihaldið öllum stundum og auðveldar þér að fjarlægja eða bæta við frosnum matvælum. Innbyggð hök í hliðum skápsins stoppa hana þegar hún er dregin út og koma auk þess í veg fyrir að skúffan detti út úr skápnum.

Kæli- & frystiskápur með BioFresh - Premium

BLU Performance

Viltu að kæliskápurinn þinn sé öflugur og þægilegur, en líka sjálfbær? Þá er Liebherr fullkominn fyrir þig. Allri kælitækni BLU Performance skápanna hefur verið þjappað saman í sökkulbotni þeirra, en það auk nákvæmrar elektrónískrar hitastýringar skilar sér í betri orkunýtni, auknu nothæfu innanrými, betri kæligetu og hljóðlátari skápum.

Innbyggður frystiskápur með klakavél - Peak

Sveigjanlegt frystirými 

Hillur úr hertu öryggisgleri eru á milli skúffa í frystirými. Mögulegt er að fjarlægja bæði skúffurnar og hillurnar á auðveldan hátt sem gerir VarioSpace rýmið einstaklega hagnýtt. Þannig má breyta samsetningu rýmisins og jafnvel koma stórum hlutum fyrir til geymslu.

Frístandandi frystiskápur með NoFrost - Pure

Einstök þægindi 

NoFrost kælitækni dreifir kældu hringrásandi lofti um frystirýmið og knýr hvers kyns raka út úr tækinu. Frystirinn er þar af leiðandi alltaf frostfrír og geymslurýmið helst jafnstórt öllum stundum. Hitastýring er elektrónísk og skápurinn einstaklega hljóðlátur.

Innbyggður frystiskápur með klakavél - Peak

SuperFrost hraðfrysting 

Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.