
Innbyggður frystiskápur án framhliðar
Samræmt heildarútlit fæst í eldhúsinu með því að undirbyggja skápinn undir borðplötu og bak við innréttingarframhlið. Innréttingarframhliðin er hengd og fest beint á framhlið skápsins með Hurð-á-Hurð uppsetningu. Skápurinn er með VarioBase sökkli sem gerir það að verkum að hægt er að aðlaga hann að innréttingunni bæði hvað varðar hæð og dýpt. Öndun fer fram í gegnum sökkulinn, sem þýðir að ekki er þörf fyrir að setja loftop og rist í borðplötuna.

NoFrost kælitækni
NoFrost kælitækni tryggir langtíma ferskleika matvæla. Matvælin eru fryst með kældu hringrásandi lofti og hvers kyns raki er knúinn út úr tækinu. Frystirinn er þar af leiðandi alltaf frostfrír og geymslurýmið helst jafnstórt öllum stundum. Hvimleiðar afþýðingar tilheyra fortíðinni með þægilegri NoFrost kælitækni.

Touch & Swipe snertiskjár
TFT lita- og snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Veldu einfaldlega aðgerðir eins og SuperCool á litaskjánum með því að snerta og swipe-a. Hitastigi er stjórnað alveg jafn auðveldlega. Og ef þú ert ekki að nota skjáinn þá sýnir hann raunhitastig skápsins öllum stundum.

VarioSpace - fjölhæft frystirými
Hillur úr hertu öryggisgleri eru á milli skúffa í frystirými. Mögulegt er að fjarlægja bæði skúffurnar og hillurnar á auðveldan hátt sem gerir VarioSpace rýmið einstaklega hagnýtt. Þannig má breyta samsetningu rýmisins og jafnvel koma stórum hlutum fyrir til geymslu.

Innbyggðar rennibrautir
Innbyggðar rennibrautir fyrir skúffur veita þægilegt aðgengi að matvælum öllum stundum. Innbyggt hak kemur í veg fyrir að skúffurnar falli út þegar þær eru opnaðar. Við lokun renna skúffurnar auðveldlega á sinn stað, sem tryggir fullkomna dreifingu lofts fyrir framan skúffurnar og því bestu mögulegu kælingu.

LED lýsing
Innihald frystirýmis er vel upplýst með LED ljósi sem er staðsett beint fyrir ofan frystiskúffurnar. Þegar skúffurnar eru dregnar út eru matvælin vel sýnileg og auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. LED lýsing er sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí. Hitamyndun er í lágmarki og bestu mögulegu geymsluaðstæður matvæla þar með tryggðar.

SoftSystem mjúklokun
SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum.

SuperFrost hraðfrysting
Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.
