
Fjölhæf,sterkbyggð og einföld í notkun
Gagnsæ gæðabrauðrist með gluggum úr tvöföldu, einangruðu hertu gleri. Glerið er auðvelt í þrifum og öruggt í opnun og lokun. Brauðristin er með öflugum, endingargóðum og útskiptanlegum quartz elementum sem tryggja jafnan hita fyrir nákvæma ristun. Einn takki er fyrir hverja virkni brauðristar. Brauðristin er með stillingu fyrir ristun brauðs og upphitun brauðs sem þegar hefur verið ristað. Einnig er stilling fyrir baguette/beyglur þar sem aðeins önnur hlið brauðsins er ristuð og stilling fyrir afþýðingu + ristun á frosnu brauði. Mögulegt er að fylgjast með ristun brauðsins gegnum glerið og því auðvelt að stjórna henni sjónrænt. Nákvæmt stig ristunar er síðan stillanlegt á skalanum 1-8. Að ristun lokinni skýst brauðið sjálfkrafa upp. Affallsbakkinn tekur mikið magn af mylsnu og hann er auðvelt að fjarlægja og þrífa.

Flestar gerðir brauða
Magimix brauðristin er með extra breiðum 38 mm raufum og sjálfvirkri miðjujöfnun fyrir jafna ristun. Mögulegt er að rista, afþýða og hita upp flestar gerðir brauða í henni til dæmis baguette, brioche, beyglur, brauðbollur og croissant. Minni sneiðum af ristuðu brauði er ýtt ofar með vogarstöng, en þannig má fjarlægja þær á öruggan hátt.
