
Tækifæri til að endurupplifa hlýleika og nærveru eldhúsa fyrri tíma
Fáguð og virðuleg hönnun, innblásin af klassískum nýlendu stíl, sem ber mann aftur til fortíðar. Tækin í Colonial línunni endurskapa þá hlýlegu stemningu og notalegu nærveru sem mörgum finnst einkennandi fyrir eldhús fyrri tíma. Línan er hönnuð fyrir fólk sem kann að meta þokkafullan, vandaðan og vingjarnlegan stíl og vill skapa einstakt andrúmsloft í eldhúsinu. Smekkleg hönnun fyrir alla sem vilja bæta við vott af fáguðum glæsibrag inn í hjarta heimilisins.

Vandað efnisval
Hönnun gashelluborðsins grípur augað og gerir það að brennidepli í eldhúsinu. Helluborðið er húðað með vönduðu enameli og sterkbyggðar, hitaþolnar pottjárnsgrindur veita hámarks stöðugleika fyrir potta og pönnur. Gæði efnisvals skilar sér í góðri endingu og einföldum þrifum.

Öflugur WOK brennari og rafmagnskveikja
Fjölbreyttar stærðir brennara gefa möguleika á réttu afli fyrir öll tækifæri. Helluborðið er með allt frá litlum orkusparandi brennara fyrir hæga og viðkvæma eldun að tvöföldum wok brennara fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Tvöfaldi WOK brennarinn er mjög öflugur og mögulegt að stjórna afli gasloga á hringjunum tveimur í sitt hvoru lagi. Gashelluborðið er einnig með rafmagnskveikju og því engin þörf á eldspítum eða kveikjara. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á tilheyrandi brennara.

Öryggisventill gegn gasleka
Hámarks öryggi og hugarró fæst með öryggisventli gegn gasleka. Ef gaslogi slokknar tímabundið, t.d. vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks, þá lokar helluborðið á gasflæði til brennara eftir örskamma stund.
