Fara í meginmál

Vörunúmer: SR764PO

Smeg

Gashelluborð - Cortina

Gashelluborð úr Cortina línu Smeg. Gasbrennarar eru 4 þar af 1 öflugur wok brennari og breiddin um það bil 60 cm. Helluborðið er með pottjárnsgrindum og yfirborði úr enameli. Gashelluborðið er með öryggisventli gegn gasleka fyrir örugga eldamennsku.

139.990 kr.

Sérpöntun

Gashelluborð - Cortina

Blær fortíðar endurvakinn

Cortina línan er hönnuð í samstarfi við járnsmiðsmeistarann Giancarlo Candeago. Innblásturinn er fenginn frá handverksmeisturum ítalskra fjalla til forna og sköpunarverka þeirra úr smíðajárni. Stíllinn endurspeglar einstakar útlínur fjallakofa í Ölpunum og arkítektúr forn ítalskra híbýla. Vandað efnisval og notkun lita gefa tækjunum óviðjafnanlega heillandi útlit. Tækin eru fáguð og vekur hönnun þeirra upp töfra þessarar gömlu smíðajárns handiðnar.

Gashelluborð - Cortina

Vandað efnisval

Hönnun gashelluborðsins grípur augað og gerir það að brennidepli í eldhúsinu. Helluborðið er húðað með vönduðu enameli og sterkbyggðar, hitaþolnar pottjárnsgrindur veita hámarks stöðugleika fyrir potta og pönnur. Gæði efnisvals skilar sér í góðri endingu og einföldum þrifum.

Gashelluborð - Cortina

Fjölbreyttar stærðir brennara með rafmagnskveikju

Tígullaga uppröðun brennara veitir hámarks rými fyrir stóra potta og pönnur á gashelluborðinu. Helluborðið er með allt frá litlum orkusparandi brennara fyrir hæga og viðkvæma eldun að öflugum wok brennara fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Fjölbreyttar stærðir brennara gefa þannig möguleika á réttu afli fyrir öll tækifæri. Gashelluborðið er einnig með rafmagnskveikju og því engin þörf á eldspítum eða kveikjara. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á tilheyrandi brennara.

Gashelluborð - Cortina

Öryggisventill gegn gasleka 

Hámarks öryggi og hugarró fæst með öryggisventli gegn gasleka. Ef gaslogi slokknar tímabundið, t.d. vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks, þá lokar helluborðið á gasflæði til brennara eftir örskamma stund.