
Blær fortíðar endurvakinn
Cortina línan er hönnuð í samstarfi við járnsmiðsmeistarann Giancarlo Candeago. Innblásturinn er fenginn frá handverksmeisturum ítalskra fjalla til forna og sköpunarverka þeirra úr smíðajárni. Stíllinn endurspeglar einstakar útlínur fjallakofa í Ölpunum og arkítektúr forn ítalskra híbýla. Vandað efnisval og notkun lita gefa tækjunum óviðjafnanlega heillandi útlit. Tækin eru fáguð og vekur hönnun þeirra upp töfra þessarar gömlu smíðajárns handiðnar.

Vandað efnisval
Hönnun gashelluborðsins grípur augað og gerir það að brennidepli í eldhúsinu. Helluborðið er húðað með vönduðu enameli og sterkbyggðar, hitaþolnar pottjárnsgrindur veita hámarks stöðugleika fyrir potta og pönnur. Gæði efnisvals skilar sér í góðri endingu og einföldum þrifum.

Öflugur WOK brennari og rafmagnskveikja
Fjölbreyttar stærðir brennara gefa möguleika á réttu afli fyrir öll tækifæri. Helluborðið er með allt frá litlum orkusparandi brennara fyrir hæga og viðkvæma eldun að tvöföldum wok brennara fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Tvöfaldi WOK brennarinn er mjög öflugur og mögulegt að stjórna afli gasloga á hringjunum tveimur í sitt hvoru lagi. Gashelluborðið er einnig með rafmagnskveikju og því engin þörf á eldspítum eða kveikjara. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á tilheyrandi brennara.

Öryggisventill gegn gasleka
Hámarks öryggi og hugarró fæst með öryggisventli gegn gasleka. Ef gaslogi slokknar tímabundið, t.d. vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks, þá lokar helluborðið á gasflæði til brennara eftir örskamma stund.
