Fara í meginmál

Vörunúmer: KM2054

Miele

Gashelluborð með kanti

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Gashelluborð frá Miele sem er með kanti, úr ryðfríu stáli og um það bil 90 cm á breidd. Gasbrennarar eru 5 þar af 2 öflugir wok brennarar. Gashelluborðið er með öryggisventli gegn gasleka fyrir örugga eldamennsku. Ef gaslogi slokknar, t.d. vegna vindkviðu, þá lokar helluborðið sjálft á gasflæði eftir örskamma stund.

359.990 kr.

Sérpöntun

Niðurfellt gashelluborð

Rafmagnskveikja

Kveiktu á loga á þægilegan hátt

Gashelluborðið er með rafmagnskveikju og því engin þörf á eldspítum eða kveikjara. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á brennara.

Niðurfellt gashelluborð

Mismunandi stærðir brennara 

Fjölbreyttar stærðir brennara fyrir mismunandi notkun

Gashelluborðið er með fjölbreyttum stærðum brennara. Allt frá litlum orkusparandi brennara fyrir hæga og viðkvæma eldun að öflugum wok brennara fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Rétt afl fyrir öll tækifæri!

Niðurfellt gashelluborð

Wok brennari

Fullkomið wok eldhús með gashelluborði frá Miele

Gashelluborð og wok eldun – þetta passar einfaldlega saman. Tvær mismunandi gerðir wok brennara eru á Miele gashelluborðum: Annars vegar einfaldur wok brennari þar sem stjórnun á afli gasloga á báðum hringjum er samtengd. Hins vegar tvöfaldur wok brennari þar sem hægt er að stjórna afli gasloga á hringjunum tveimur í sitt hvoru lagi.

Niðurfellt gashelluborð

GasStop

Skynjar ef slokknar á loga fyrir hámarks öryggi

Gashelluborðið er með stýriloka sem skynjar ef slokknar á loga. Ef gaslogi slokknar tímabundið, t.d. vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks, þá lokar helluborðið á gasflæði eftir örskamma stund.

Gashelluborð með kanti

Pottjárnsgrindur og brennarar með emeleringu

Mikil gæði fyrir lengri endingu

Gashelluborðið er með sterkbyggðum pottjárnsgrindum og brennurum með emeleringu. Hlutarnir eru í fyrsta flokks gæðum og gerðir til að endast. Brennarar helluborðsins eru auk þess með viðloðunarfrírri PerfectClean húð sem gerir þrif einstaklega auðveld.

Niðurfellt gashelluborð

Stjórntakkar framan á borði

Þægilegt í notkun

Gashelluborð frá Miele eru með snúnings stjórntökkum úr plasti eða málmi. Takkarnir eru staðsettir framan á borðinu þar sem auðvelt og öruggt er að stjórna aflinu.