-min-5eb92e40-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
QuickStart
Kveiktu á helluborðinu með einum snöggum snúningi
Auðvelt og þægilegt: Engin þörf er á að ýta og halda stjórntakka niðri til að kveikja á brennara. Þægileg rafstýring kveikir sjálfkrafa á brennurum þegar snúningstakka er snúið.

ComfortClean pottjárnsgrindur
Einstaklega þægileg þrif
Fljótleg þrif: setjið pottjárnsgrindurnar í uppþvottavélina og haldið helluborðinu hreinlegu í lengri tíma. Gashelluborðið er með sterkbyggðum pottjárnsgrindum og brennurum með emeleringu. Hlutarnir eru í fyrsta flokks gæðum og gerðir til að endast.

Wok brennari
Fullkomið wok eldhús með gashelluborði frá Miele
Gashelluborð og wok eldun – þetta passar einfaldlega saman. Tvær mismunandi gerðir wok brennara eru á Miele gashelluborðum: Annars vegar einfaldur wok brennari þar sem stjórnun á afli gasloga á báðum hringjum er samtengd. Hins vegar tvöfaldur wok brennari þar sem hægt er að stjórna afli gasloga á hringjunum tveimur í sitt hvoru lagi.

Mismunandi stærðir brennara
Fjölbreyttar stærðir brennara fyrir mismunandi notkun
Gashelluborðið er með fjölbreyttum stærðum brennara. Allt frá litlum orkusparandi brennara fyrir hæga og viðkvæma eldun að öflugum wok brennara fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Rétt afl fyrir öll tækifæri!

GasStop & ReStart
Sjálfvirk uppkveikja fyrir aukið öryggi
Gaslogi getur slokknað vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks. Helluborðið skynjar þetta og kveikir aftur sjálfkrafa á loganum. Ef það virkar ekki þá lokar helluborðið á gasflæði eftir örskamma stund – einfalt og öruggt.

Stjórntakkar framan á borði
Þægilegt í notkun
Gashelluborð frá Miele eru með snúnings stjórntökkum úr plasti eða málmi. Takkarnir eru staðsettir framan á borðinu þar sem auðvelt og öruggt er að stjórna aflinu.
