Fara í meginmál

Vörunúmer: PV695LCNR

Smeg

Gashelluborð með keramikplötu - Dolce Stil Novo

Gashelluborð úr Dolce Stil Novo línu Smeg. Gasbrennarar eru 5 þar af 1 öflugur wok brennari og breiddin um það bil 90 cm. Helluborðið er með keramikplötu, pottjárnsgrindum og er kantur helluborðsins að framan og aftan koparlitaður. Gashelluborðið er með öryggisventli gegn gasleka fyrir örugga eldamennsku.

436.360 kr.

Sérpöntun

Gashelluborð með keramikplötu - Dolce Stil Novo

Hagnýtni rennur saman við fagurfræði, þar sem myrkur verður að ljósi

Minimalískur stíll einkennir Dolce Stil Novo línuna en innblástur hennar kemur frá mikilvægri bókmenntahreyfingu, tileinkaðri ástarljóðum, sem átti sér stað á Ítalíu á 13. öld. Hágæða efnisval, einlitt yfirborð og fallegir skrautlistar úr ryðfríu stáli eða kopar, skapa bæði tímalaust og fágað útlit. Tæki með afgerandi stíl og búin nýjustu tækni sem eru auðveldlega í brennidepli í því rými sem þau standa.

Gashelluborð með keramikplötu - Linea

Vandað efnisval  

Efnisval helluborðsins er vandað og það sómir sér vel í hvaða eldhúsi sem er. Botn helluborðsins er styrktur með stálplötu sem er staðsett beint undir keramikplötunni. Einfalda keramik glerplatan mælist aðeins 4 til 8 mm á þykkt, en er þrátt fyrir það ótrúlega sterkbyggð, þolir hita yfir 800°C, auk þess að vera vatns- og höggþolin. Sterkbyggðar og hitaþolnar pottjárnsgrindur veita síðan hámarks stöðugleika fyrir potta og pönnur. Þessi gæði skila sér í góðri endingu helluborðsins og einföldum þrifum.

Gashelluborð með keramikplötu - Dolce Stil Novo

Fjölbreyttar stærðir brennara með rafmagnskveikju

Fjölbreyttar stærðir brennara gefa möguleika á réttu afli fyrir öll tækifæri. Helluborðið er með allt frá litlum orkusparandi brennara fyrir hæga og viðkvæma eldun að öflugum wok brennara fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Gashelluborðið er einnig með rafmagnskveikju og því engin þörf á eldspítum eða kveikjara. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á tilheyrandi brennara. 

Gashelluborð með keramikplötu - Dolce Stil Novo

Öryggisventill gegn gasleka 

Hámarks öryggi og hugarró fæst með öryggisventli gegn gasleka. Ef gaslogi slokknar tímabundið, t.d. vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks, þá lokar helluborðið á gasflæði til brennara eftir örskamma stund.