Fara í meginmál

Vörunúmer: PV164B3

Smeg

Gashelluborð með keramikplötu - Linea

Gashelluborð úr Linea línu Smeg. Gasbrennarar eru 4, breiddin um það bil 60 cm og kanntur fasaður. Yfirborð helluborðsins er úr hertu gleri, með pottjárnsgrindum og botninn styrktur með stálplötu. Öryggisventill er til staðar gegn gasleka.

179.990 kr.

Ekki til á lager

Gashelluborð með keramikplötu - Linea

Endurspeglun glæsileika 

Linea vörulínan fagnar fyrsta undirstöðuatriði hönnunar – "línunni". Helstu einkenni vörulínunnar eru samhverfar línur, jafnvægi og birta. Stopsol® "supersilver" gler, mjög sterkt efni með kristals gagnsæi, gefur tækjunum fallega spegiláferð sem endurkastar ljósi og litum þess umhverfis sem tækin eru staðsett í. Hönnunarsamsetning þessa glæsilega spegilglers við ryðrítt stál með satin áferð myndar fallegt jafnvægi. Áreynslulaus einfaldleiki, jafnvægi og óafsakanlegur minimalismi; Linea tæki eru búin nýjustu tækni og sóma sér vel í nútíma eldhúsum. 

Gashelluborð með keramikplötu - Linea

Vandað efnisval  

Efnisval helluborðsins er vandað og það sómir sér vel í hvaða eldhúsi sem er. Botn helluborðsins er styrktur með stálplötu sem er staðsett beint undir keramikplötunni. Einfalda keramik glerplatan mælist aðeins 4 til 8 mm á þykkt, en er þrátt fyrir það ótrúlega sterkbyggð, þolir hita yfir 800°C, auk þess að vera vatns- og höggþolin. Sterkbyggðar og hitaþolnar pottjárnsgrindur veita síðan hámarks stöðugleika fyrir potta og pönnur. Þessi gæði skila sér í góðri endingu helluborðsins og einföldum þrifum.

Gashelluborð með keramikplötu - Linea

Fjölbreyttar stærðir brennara með rafmagnskveikju

Fjölbreyttar stærðir brennara gefa möguleika á réttu afli fyrir öll tækifæri. Helluborðið er með allt frá litlum orkusparandi brennara fyrir hæga og viðkvæma eldun að mjög stórum brennara fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Gashelluborðið er einnig með rafmagnskveikju og því engin þörf á eldspítum eða kveikjara. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á tilheyrandi brennara. 

Gashelluborð með keramikplötu - Linea

Lóðréttur logi brennara

Brennarar helluborðsins eru með lóðréttum loga, einstakri tækni sem eykur afkastagetu þeirra. Logar beinast nánast beint upp, sem þýðir að hitinn beinist allur upp til þess að hita botn pottsins en tapast ekki út með hliðum hans.

Gashelluborð með keramikplötu - Linea

Öryggisventill gegn gasleka 

Hámarks öryggi og hugarró fæst með öryggisventli gegn gasleka. Ef gaslogi slokknar tímabundið, t.d. vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks, þá lokar helluborðið á gasflæði til brennara eftir örskamma stund.