Fara í meginmál

Vörunúmer: CS7102-1FL

Miele

Gashelluborð - SmartLine raðeining

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

SmartLine raðeining frá Miele með keramikplötu og 2 gasbrennurum. Raðeiningin er um það bil 40 cm á breidd, pottjárnsgrindur má setja í uppþvottavél og er raðeiningin með öryggisventli gegn gasleka fyrir örugga eldamennsku. Ef gaslogi slokknar, t.d. vegna vindkviðu, þá lokar helluborðið sjálft á gasflæði eftir örskamma stund. SmartLine raðeiningum er hægt að raða upp á mismunandi hátt eins og hentar vegna þess að þær samþættast fullkomlega. Raðeininguna er bæði hægt að fella niður í borðplötu og hafa yfirfellda.

379.990 kr.

Sérpöntun

Gashelluborð - SmartLine raðeining

Rafmagnskveikja

Kveiktu á loga á þægilegan hátt

Gashelluborðið er með rafmagnskveikju og því engin þörf á eldspítum eða kveikjara. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á brennara.

Gashelluborð - SmartLine raðeining

ComfortClean pottjárnsgrindur 

Einstaklega þægileg þrif

Fljótleg þrif: setjið pottjárnsgrindurnar í uppþvottavélina og haldið helluborðinu hreinlegu í lengri tíma. Gashelluborðið er með sterkbyggðum pottjárnsgrindum og brennurum með emeleringu. Hlutarnir eru í fyrsta flokks gæðum og gerðir til að endast.

Gashelluborð - SmartLine raðeining

GasStop

Skynjar ef slokknar á loga fyrir hámarks öryggi

Gashelluborðið er með stýriloka sem skynjar ef slokknar á loga. Ef gaslogi slokknar tímabundið, t.d. vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks, þá lokar helluborðið á gasflæði eftir örskamma stund.

Gashelluborð - SmartLine raðeining

Stjórntakkar úr málmi

Falleg hönnun sést á smáatriðunum

Hágæða málmtakkarnir eru staðsettir framan á borðinu þar sem auðvelt, þægilegt og öruggt er að stjórna aflinu.