
Ástríða fyrir hefðum og smáatriðum
Fagurfræði Victoria línunnar er tileinkuð fólki sem vill hlýlegt eldhúsrými sem tekur vel á móti því. Þeim sem vilja skapa andrúmsloft sem er uppfullt af friðsæld, gleði og hlátri, þar sem tíminn virðist standa í stað. Innblástur línunnar kemur frá "Elisabeth" eldavélinni, þeirri fyrstu sem Smeg framleiddi árið 1948 og töfrar fram nostalgíska sveitarómantík. Línan sameinar tímalausa, klassíska hönnun og einstaka fegurð.

Hönnun sem grípur augað
Einstök retro hönnun gerir gashelluborðið auðveldlega að brennidepli í eldhúsinu. Helluborðið er húðað með vönduðu enameli og sterkbyggðar, hitaþolnar pottjárnsgrindur veita hámarks stöðugleika fyrir potta og pönnur. Gæði efnisvals skilar sér í góðri endingu helluborðsins og einföldum þrifum.

Öflugur WOK brennari og rafmagnskveikja
Fjölbreyttar stærðir brennara gefa möguleika á réttu afli fyrir öll tækifæri. Helluborðið er með allt frá litlum orkusparandi brennara fyrir hæga og viðkvæma eldun að tvöföldum wok brennara fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Tvöfaldi WOK brennarinn er mjög öflugur og mögulegt að stjórna afli gasloga á hringjunum tveimur í sitt hvoru lagi. Gashelluborðið er einnig með rafmagnskveikju og því engin þörf á eldspítum eða kveikjara. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á tilheyrandi brennara.

Öryggisventill gegn gasleka
Hámarks öryggi og hugarró fæst með öryggisventli gegn gasleka. Ef gaslogi slokknar tímabundið, t.d. vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks, þá lokar helluborðið á gasflæði til brennara eftir örskamma stund.
