Fara í meginmál

Vörunúmer: DGM7840S

Miele

Gufuofn með örbylgju - M-Touch

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Innbyggður gufuofn með örbylgju frá Miele, með MTouch snertiskjá. Ofninn er með stóru 40 lítra innanrými, fjölmörg sjálfvirk eldunarkerfi auk örbylgjukerfis fyrir poppkorn sem er sett af stað með einni snertingu. Dualsteam gufutæknin tryggir hraða og jafna dreifingu gufu sem skilar sér í fullkomnum árangri við eldun.

1.219.990 kr.

Sérpöntun

Gufuofn með örbylgju - M-Touch

DualSteam 

Jafn árangur gufudreifingar tryggður

Fullkomnun sem hentar þínum persónulegu þörfum: Miele gufuofnar tryggja fullkomna eldun og eru frábær viðbót við blástursofn og helluborð. Þú getur eldað heilar máltíðir samsettar af mörgum réttum á sama tíma í ofninum. DualSteam tryggir hraða og jafna dreifingu gufu í ofnrými og kringum bakkana. Upphitun er hröð og eldunartími stuttur. Matseldin verður leikur einn þökk sé DualSteam og gufumyndun sem á sér stað fyrir utan ofnrýmið.

Gufuofn með örbylgju - M-Touch

3-in-1

Allt í einu tæki

3 in 1 reglan gefur þér eitt tæki með þrjú hlutverk. Þetta þýðir að þú getur töfrað fram dásamlega rétti jafnvel þótt eldhúsrýmið sé takmarkað. Gufusuðu er hægt að nota til þess að elda mat varlega, á meðan örbylgjan er til dæmis fullkomin til þess að poppa örbylgjupopp. Blandaða eldunarkerfið hraðeldun, er besti kosturinn fyrir fullkominn árangur. Eldunarkerfið varðveitir gæði gufuelduðu matvælanna en eldunarferlið tekur skemmri tíma en venjuleg gufusuða!

Gufuofn með örbylgju - M-Touch

Hraðeldun

Styttri eldunartími

Nú getur þú eldað máltíðir á skemmri tíma en nokkru sinni fyrr með hraðeldun, blönduðu eldunarkerfi.  Sameining gufusuðu við örbylgjukerfi tryggir fullkominn árangur á stysta mögulega tíma.

Gufuofn með örbylgju - M-Touch

Ofnrými úr ryðfríu stáli með lérefts mynstri 

Eiginleikar sem fagmenn þekkja

Meira en nægt rými og hröð þrif: ofnrýmið er úr ryðfríu stáli og er nýtanlegt rými allt að 40 lítrar. Þar af leiðandi er mögulegt að setja til dæmis heila stóra kjúklinga eða fisk á eldunarbakka og koma fyrir í ofninum. Þetta þýðir að þú getur eldað heilar máltíðir fyrir 8 til 10 manns í einu – til þægindaauka. Auk þess að vera rúmgott, er ofnrýmið algerlega ryðvarið og mjög auðvelt í þrifum. 

Gufuofn með örbylgju - M-Touch

Auto kerfi 

Áhyggjulaus eldun og árangur gulltryggður  

Hversu lengi þarf að elda hrísgrjónin? Hvað með grænmetið? Þú þarft hvorki að velja hitastig né tímalengd í allt að 135 mismunandi sjálfvirkum kerfum gufuofnsins - tækið þitt mun sjá um allt og þar með gera þitt líf auðveldara. Viltu að gulræturnar séu aðeins stökkari? Þú getur valið stig eldunar á stuðlariti fyrir margar fæðutegundir.

Gufuofn með örbylgju - M-Touch

Quick & Gentle 

Óendanlegir möguleikar á aflstillingum

Nýji eiginleikinn Quick & Gentle gerir þér kleift að sameina venjulega gufusuðu með örbylgjuafli frá 300 W-1000 W og eru stillingarmöguleikar óendanlegir. Þetta sparar tíma og tryggir að maturinn er eldaður nákvæmlega eins og þér finnst gott. Nýstárlegur rafeindabúnaður gerir þetta mögulegt – fyrir hraðari og bragðbetri árangur við eldamennsku hversdagsins.

Gufuofn með örbylgju - M-Touch

Menu Cooking - Auto

Fyrir heilar máltíðir

Fiskur eða kjöt, kartöflur eða grænmeti: þú getur sameinað allt að þrjú Auto kerfi fyrir þrjár mismunandi fæðutegundir. Tækið stillir rétt hitastig, eldunartíma og röð. Allt sem þú þarft að gera fyrir fullkominn árangur, er að setja matinn inn í gufuofninn á réttum tíma og í þeirri röð sem ofninn gefur upp. Þetta gefur þér möguleika á því að elda heilar máltíðir, þar sem allt verður tilbúið samtímis, í aðeins einu eldunarferli.

Gufuofn með örbylgju - M-Touch

Poppkornskerfi 

Ferskt poppkorn með einni snertingu 

Hvernig yrði góð bíómynd án poppkorns? Með sjálfvirka poppkornskerfinu getur þú búið til dásamlegt poppkorn í örbylgjuofninum heima hjá þér með einni snertingu á takka á stjórnborði. Tímalengd og wött eru miðuð við 100 g poka af örbylgjupoppi. Ef þú vilt stökkt poppkorn, getur þú aðlagað tímalengd að þínum þörfum.

Gufuofn með örbylgju - M-Touch

Sous-vide eldun 

Eldað í lofttæmi 

Jafnt og varlega: þú getur eldað mat í gufuofninum með sous-vide aðferð. Þetta felur í sér að elda fisk, kjöt, ávexti og grænmeti varlega á lágu hitastigi í langan tíma, sem leiðir af sér frábærlega ilmandi og dásamlega bragðgóðan mat. Matvælin viðhalda útliti sínu og lögun, auk allra vítamína og steinefna.

Gufuofn með örbylgju - M-Touch

Gufa framleidd fyrir utan ofnrýmið  

Kostir ytri gufumyndunar 

Nýstárlegt gufukerfi: Ólíkt öðrum gufuofnum þá er gufan í Miele gufuofnum framleidd fyrir utan ofnrýmið. Á meðan eldun fer fram streymir gufan inn í ofnrýmið, fyllir það algjörlega og leysir súrefnið af hólmi. Árangurinn er stuttur eldunartími og nákvæm hitastýring auk þess að náttúruleg litarefni matvælanna varðveitast. Þrif eru einnig einstaklega auðveld vegna þess að útfellingar geta ekki safnast upp í ofnrýminu sjálfu.