
Innbyggð vifta fyrir mínimalísk eldhús
HIDDEN 2.0 er algerlega innbyggð vifta sem ætluð er til uppsetningar í efri skápa. Viftan hentar einstaklega vel inn í eldhús sem eru með mínimalískum stíl og er hönnuð af Elica Design Center. Viftan er með jaðarsogi, stílhrein plata felur filtera og mögulegt er að setja hana upp annað hvort fyrir útblástur eða hringblástur. HIDDEN 2.0 er fáanleg annað hvort í ryðfríu stáli eða í ryðfríu stáli með hvítu gleri.

LongLife kolafilter
Lýsingu og afli viftunnar er stjórnað með einföldum þrýstitökkum. LED lýsingin gefur náttúrulega og áhrifaríka birtu sem skín beint niður á helluborðið og veitir bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna. Auðvelt er að fjarlægja filtera og setja þá aftur á sinn stað. LongLife kolafilter er notaður ef HIDDEN 2.0 er sett upp fyrir hringblástur, en hann má endurnýta með þrifum í uppþvottavél 2 til 3 hvern mánuð. Líftími kolafiltersins verður allt að þrjú ár með þessu móti og komist verður hjá tíðum og eyðslusömum útskiptum filters.
