Fara í meginmál

Vörunúmer: PRF0095073A

Elica

HIDDEN 90

Einstaklega falleg vifta frá Elica úr ryðfríu stáli og með LED lýsingu. Stjórnborð er með þrýstitökkum og stílhrein plata felur filtera. HIDDEN er með jaðarsogi og ætluð til innbyggingar í efri skápa.

Hönnun: ELICA DESIGN CENTER

109.990 kr.

Ekki til á lager

HIDDEN 60

Innbyggð vifta fyrir mínimalísk eldhús

HIDDEN 2.0 er algerlega innbyggð vifta sem ætluð er til uppsetningar í efri skápa. Viftan hentar einstaklega vel inn í eldhús sem eru með mínimalískum stíl og er hönnuð af Elica Design Center. Viftan er með jaðarsogi, stílhrein plata felur filtera og mögulegt er að setja hana upp annað hvort fyrir útblástur eða hringblástur. HIDDEN 2.0 er fáanleg annað hvort í ryðfríu stáli eða í ryðfríu stáli með hvítu gleri.

HIDDEN 60

LongLife kolafilter

Lýsingu og afli viftunnar er stjórnað með einföldum þrýstitökkum. LED lýsingin gefur náttúrulega og áhrifaríka birtu sem skín beint niður á helluborðið og veitir bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna. Auðvelt er að fjarlægja filtera og setja þá aftur á sinn stað. LongLife kolafilter er notaður ef HIDDEN 2.0 er sett upp fyrir hringblástur, en hann má endurnýta með þrifum í uppþvottavél 2 til 3 hvern mánuð. Líftími kolafiltersins verður allt að þrjú ár með þessu móti og komist verður hjá tíðum og eyðslusömum útskiptum filters.