Fara í meginmál

Vörunúmer: H7860BPXB

Miele

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Höldulaus, innbyggður blástursofn frá Miele með þægilegri Touch2Open hurðaropnun. Ofninn innheldur nýjustu tækni sem völ er á, til að mynda myndavél þar sem þú getur fylgst með bakstri í símanum þínum. Ofninn er með MTouch TFT snertiskjá, sjálfhreinsikerfi fyrir einföld þrif og þráðlausum kjarnhitamæli sem veitir nákvæma og fullkomna stjórnun á eldun. Ofninn er með yfir 100 einföld og þægileg sjálfvirk eldunarkerfi. Hann er einnig með rakastýringu sem tryggir ennþá betri steikningu og bakstur, en gufupúst rakastýringarinnar skila léttara deigi og vel brúnaðri steik. Fjölhæfur blástursofn sem uppfyllir allar helstu óskir matgæðinga.

1.129.990 kr.

Sérpöntun

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

Moisture Plus

Ákjósanlegur árangur með meiri raka

Auðveldasta leiðin til þess að ná fullkomnum árangri: ýmis eldunarkerfi gefa þér möguleika á því að bæta við meiri raka. Rakastýring tryggir að kjöt fær dásamlega harða skorpu að utan en helst mjúkt og safaríkt fyrir innan skorpuna, einnig fá brauð og bakkelsi fullkomna brúnun en haldast mjúk fyrir innan skorpuna. Þú getur tímastillt ofninn til þess að gefa gufupúst á ákveðnum tímum til þægindaauka. Rakastýringin er einnig notuð í ýmsum sjálfvirkum kerfum.

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

FoodView

Fylgstu með matnum þínum

Núna getur þú fylgst með matnum í ofninum þínum sama hvar þú ert: myndavél sem er staðsett í toppi ofnrýmisins sýnir þér hvernig maturinn þinn lítur út með snjallforriti í símanum eða spjaldtölvunni þinni. Ef þörf er á, getur þú líka aðlagað stillingar á ofninum með farsímanum þínum. Þetta gefur þér meiri stjórn og þar af leiðandi meira frelsi – auk óviðjafnanlegra þæginda.

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

Auto kerfi

Áhyggjulaus eldun og árangur gulltryggður 

Árangursrík eldun í hvert skipti: með sjálfvirkum kerfum getur þú eldað fjöldann allan af mismunandi réttum á einfaldan hátt. Hvort sem þú ert að fara að baka köku eða elda kjúkling – þá er ekki þörf á því að velja ákveðið eldunarkerfi, hitastig né tímalengd. Stig eldunar er hins vegar hægt að velja sérstaklega á stuðlariti, fyrir kjöt t.d. frá "rare" til "well done". 

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

Þráðlaus kjarnhitamælir

Fullkomin eldun án eftirlits

Eldun með kjarnhitamæli tryggir besta árangurinn: þú getur eldað kjöt, fisk og alifuglakjöt með fullkominni nákvæmni með þráðlausa kjarnhitamælinum sem Miele er með einkaleyfi fyrir. Og það er óþarfi að sitja yfir ofninum vegna þess að skjárinn gefur upp eftirstöðvar eldunartíma og þar með hvenær maturinn verður tilbúinn. Þráðlausi kjarnhitamælirinn er einfaldur í notkun og er geymdur í ofnhurðinni fyrir auðvelt aðgengi hvenær sem er – sem veitir þér aukin þægindi við eldamennskuna.

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

TasteControl

Heldur einungis áfram með eldun ef þú vilt það

Stoppar eldunarferlið fyrir fullkominn árangur: ofnrýmið er hægt að kæla algerlega niður eftir eldunarferlið, þannig að matvælin haldi ekki áfram að eldast í ofninum. Einnig getur ofninn haldið matvælum á því hitastigi sem þau eru borin fram, með því að opna og loka rafstýrðu hurðinni. Þetta tryggir að réttirnir þínir eru eldaðir fullkomlega en ekki of mikið – jafnvel þótt þú sért ekki á staðnum til þess að taka þá út úr ofninum alveg strax.

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

MotionReact 

Bregst við þegar þú nálgast 

Þú getur stjórnað ofninum þínum án þess að ýta á takka eða snerta hann yfirhöfuð. Þegar þú nálgast tækið, kvikna ljós í ofnrými eða ljós á stjórnborði. Einnig er mögulegt að láta hljóðmerki sem gefa til kynna lok eldunarkerfis slokkna þegar þú nálgast ofninn – til þægindaauka. Ef tækið er í gangi á bakvið lokaða innréttingarhurð, getur MotionReact sent frá sér hljóðmerki og slökkt á tækinu er þörf er á

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

BrilliantLight 

Fullkomin yfirsýn á öllum hæðum 

Hágæða LED súlur tryggja að allar hæðir í ofnrýminu eru fullkomlega upplýstar, sem gefur þér bestu yfirsýn á matinn þinn frá öllum hliðum.

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

FlexiClip brautir

Ákjóanlegasta aðgengi að matnum þínum 

Snúðu matnum eða dreyptu á hann feiti meðan á ofnsteikingu stendur á þægilegan hátt og í öruggri fjarlægð frá heitu ofnrýminu: með útdraganlegum FlexiClip brautum, getur þú auðveldlega dregið bökunarplötur eða grillgrindur alveg út úr ofninum án þess að eiga á hættu að brenna þig. Brautirnar eru útdraganlegar að fullu og mögulegt er að staðsetja þær á mismunandi hæðum allt eftir þínum þörfum, en Miele er með einkaleyfi á þessu kerfi.

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

Crisp function 

Gerir mat stökkan 

Sum matvæli þurfa fallegt stökkt yfirborð fyrir þessa fullkomnu lokaáferð: best er til dæmis að elda kartöfluflögur, pizzu og franskar kartöflur í ofnrými með þurrum hita. Þessu er stjórnað með því að minnka rakann í ofninum. Þú getur valið stillinguna Crisp function eina og sér.

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

Pyrolytic sjálfhreinsikerfi og PyroFit aukahlutir

Áreynslulaus þrif 

Gerir lífið auðveldara: pyrolytic sjálfhreinsikerfið breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborði ofnrýmisins án ummerkja – sem minnkar þína vinnu við þrif á ofninum. Þetta þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba ofninn með sterkum hreinsiefnum. Til þægindaauka mega sumir aukahlutir vera inni í ofninum á meðan sjálfhreinsun fer fram, en athugið að þetta er mismunandi á milli módela.

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

SoftOpen & SoftClose 

Mjúkar hurðarhreyfingar

Virkilega eftirtektarvert: hurðin er með einkennandi háþróuðu demparakerfi fyrir vandaða opnun og lokun. Hún opnast í 90° - sem veitir óhindrað aðgengi að matnum í ofnrýminu til þægindaauka.