Fara í meginmál

Vörunúmer: H7840BMXS

Miele

Höldulaus blástursofn með örbylgju & kjarnhitamæli - M-Touch

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Höldulaus, innbyggður blástursofn með örbylgju frá Miele. Ofninn er með þægilegri Touch2Open hurðaropnun, SoftOpen og SoftClose, MTouch TFT snertiskjá og kjarnhitamæli sem veitir nákvæma og fullkomna stjórnun á eldun. Ofnrýmið er með sterku yfirborði úr ryðfríu stáli og PerfectClean húð sem er auðvelt að þrífa. Í ofninum eru sjálfvirk eldunarkerfi, örbylgjukerfi fyrir poppkorn sem er sett af stað með einni snertingu og blönduð kerfi fyrir fljóta og fullkomna eldun. Fjölhæfur blástursofn með örbylgju sem uppfyllir allar helstu óskir matgæðinga.

859.990 kr.

Sérpöntun

Höldulaus blástursofn með örbylgju & kjarnhitamæli - M-Touch

Quick & Gentle 

Óendanlegir möguleikar á aflstillingum

Nýji eiginleikinn Quick & Gentle gerir þér kleift að sameina venjulegt ofnkerfi með örbylgjukerfi og eru stillingarmöguleikar óendanlegir - sérhannað fyrir þínar þarfir. Þetta sparar tíma og tryggir að maturinn er eldaður nákvæmlega eins og þér finnst gott. Nýstárlegur rafeindabúnaður gerir þetta mögulegt – fyrir meiri sveigjanleika við eldamennsku hversdagsins.

Höldulaus blástursofn með örbylgju & kjarnhitamæli - M-Touch

Ofnrými úr ryðfríu stáli með PerfectClean

Sérstök viðloðunarfrí áferð 

Viðloðun matvæla við ofnrýmið á meðan eldun fer fram er mun minni. Ástæðan er að ofnrýmið er úr hágæða ryðfríu stáli með sérstöku lérefts mynstri. Yfirborðið er einnig með PerfectClean húð, sem gerir það sérstaklega auðvelt í þrifum – þökk sé háþróuðu yfirborðinu, getur þú notið meira hreinlætis og sparað tíma við þrif.

Höldulaus blástursofn með örbylgju & kjarnhitamæli - M-Touch

Kjarnhitamælir 

Fiskur og kjöt eldað með nákvæmum hætti

Ennþá hrátt eða of þurrt? Með innbyggða kjarnhitamælinum, getur þú mælt kjarnhitastig fisks eða kjöts til þess að tryggja að maturinn sé eldaður nákvæmlega eins og þú vilt. Eftirstöðvar eldunartíma á skjánum segir til um hvenær steikin þín verður tilbúin – þannig að þú getur farið út úr eldhúsinu þegar þér hentar. Kjarnhitamælirinn er ótrúlega einfaldur í notkun og er útkoman safarík og bragðmikil.

Höldulaus blástursofn með örbylgju & kjarnhitamæli - M-Touch

3 in 1 

Eitt tæki, fjölmargir möguleikar 

Töfraðu fram dásamlega rétti jafnvel þótt eldhúsrýmið sé takmarkað: þú getur eldað matvæli á venjulegum ofnkerfum eða venjulegum örbylgjukerfum. Einnig er hægt að elda á ofnkerfi með örbylgju fyrir fullkominn árangur á skömmum tíma. Fjöldi mögulegra eldunarkerfa sér fyrir fullkominni stillingu fyrir hvaða aðstæður sem er- hvort sem þú vilt hita upp, elda eða afþýða matinn þinn.

Höldulaus blástursofn með örbylgju & kjarnhitamæli - M-Touch

Auto kerfi

Áhyggjulaus eldun og árangur gulltryggður 

Árangursrík eldun í hvert skipti: með sjálfvirkum kerfum getur þú eldað fjöldann allan af mismunandi réttum á einfaldan hátt. Hvort sem þú ert að fara að baka köku eða elda kjúkling – þá er ekki þörf á því að velja ákveðið eldunarkerfi, hitastig né tímalengd. Stig eldunar er hins vegar hægt að velja sérstaklega á stuðlariti, fyrir kjöt t.d. frá "rare" til "well done". Og þegar örbylgju er bætt við, verða réttirnir þínir tilbúnir á jafnvel enn skemmri tíma.

Höldulaus blástursofn með örbylgju & kjarnhitamæli - M-Touch

Quick MW 

Veldu hámarksafl strax frá byrjun 

Með Quick Start, hraðvalstakka fyrir örbylgjukerfi, getur þú valið hámarksafl strax frá byrjun með einum takka á stjórnborði. Þetta gerir þér kleift að hita matvæli og drykki hratt án þess að velja hitastig. Auðvelt er að endurstilla fyrirfram ákveðnu tímalengdina sem kerfið býður upp á eftir þínum þörfum - til dæmis, ef þú vilt hita upp tebolla á kvöldin eða hita upp barnamat.

Höldulaus blástursofn með örbylgju & kjarnhitamæli - M-Touch

Poppkornskerfi 

Ferskt poppkorn með einni snertingu 

Hvernig yrði góð bíómynd án poppkorns? Með sjálfvirka poppkornskerfinu getur þú búið til dásamlegt poppkorn í örbylgjuofninum heima hjá þér með einni snertingu á takka á stjórnborði. Tímalengd og wött eru miðuð við 100 g poka af örbylgjupoppi. Ef þú vilt stökkt poppkorn, getur þú aðlagað tímalengd að þínum þörfum.

Höldulaus blástursofn með örbylgju & kjarnhitamæli - M-Touch

MotionReact 

Bregst við þegar þú nálgast 

Þú getur stjórnað ofninum þínum án þess að ýta á takka eða snerta hann yfirhöfuð. Þegar þú nálgast tækið, kvikna ljós í ofnrými eða ljós á stjórnborði. Einnig er mögulegt að láta hljóðmerki sem gefa til kynna lok eldunarkerfis slokkna þegar þú nálgast ofninn – til þægindaauka. Ef tækið er í gangi á bakvið lokaða innréttingarhurð, getur MotionReact sent frá sér hljóðmerki og slökkt á tækinu er þörf er á.

Höldulaus blástursofn með örbylgju & kjarnhitamæli - M-Touch

LED ljóskastari 

Besta mögulega lýsing 

Þökk sé viðhaldsfríum eiginleikum, lýsir LED ljóskastarinn ofnrýmið fullkomlega upp á endingargóðan hátt. Hann er líka sérstaklega orkunýtinn.

Höldulaus blástursofn með örbylgju & kjarnhitamæli - M-Touch

Crisp function 

Gerir mat stökkan 

Sum matvæli þurfa fallegt stökkt yfirborð fyrir þessa fullkomnu lokaáferð: best er til dæmis að elda kartöfluflögur, pizzu og franskar kartöflur í ofnrými með þurrum hita. Þessu er stjórnað með því að minnka rakann í ofninum. Þú getur valið stillinguna Crisp function eina og sér.

Höldulaus blástursofn með örbylgju & kjarnhitamæli - M-Touch

SoftOpen & SoftClose 

Mjúkar hurðarhreyfingar

Virkilega eftirtektarvert: hurðin er með einkennandi háþróuðu demparakerfi fyrir vandaða opnun og lokun. Hún opnast í 90° - sem veitir óhindrað aðgengi að matnum í ofnrýminu til þægindaauka.