
Hægeldun
Hitaminnkun fyrir bragðgóðan árangur
Hægeldun er fullkomin leið til þess að elda hágæða kjöt: þessi aðferð er mikið notuð af atvinnukokkum, en með henni er kjötið eldað varlega við lágt hitastig til þess að tryggja varðveislu bragðs og næringarefna. Kjötið verður mjúkt, safaríkt og bragðgott en mögulegt er að skera það strax að eldunarferli loknu. Óþarfi er að láta kjötið standa fyrst vegna þess að dreifing safans í kjötinu er jöfn.

Fjögur kerfi
Fjöltæk notkun
Margir möguleikar: þú getur valið á milli fjögurra mismunandi kerfa í Gourmet hitaskúffunni. Forhitaðu kaffibollana fyrir hreina ánægju. Á kvöldin getur þú notið þess munaðar að forhita diskana þína. Ef maturinn er ekki alveg tilbúinn til framreiðslu að eldun liðinni, heldur hitaskúffan matnum heitum fyrir þig. Að lokum er hægeldun fullkomin leið til þess að elda mjúkt og safaríkt kjöt.

Stjórnborð með snertitökkum
Snjallt og auðskiljanlegt
Einfalt stjórnborð: Miele vacuum skúffunni er stjórnað með auðveldum og snjöllum hætti með SensorTouch stjórnborði, sem er undir glerpanel í falsi skúffunnar. Stjórnborðið veitir beinan aðgang að allri virkni skúffunnar – fyrir hámarksþægindi notanda. Auk þess er stjórnborðið auðvelt í þrifum og þar af leiðandi viðhaldslítið.

Push2open
Ein snerting er nóg
Fullar hendur? Ekkert mál – ýttu varlega á skúffuna og hún opnast strax þökk sé praktísku Push2open tækninni. Tæknibúnaður með gormum sér til þess að skúffan opnist alveg út, sem auðveldar bæði hleðslu og alla notkun. Úthugsað hölduleysið tryggir að skúffan passi fullkomlega við öll innbyggðu Miele tækin.

Tímastillir
Hrein og bein þægindi
Áhyggjulaus eldamennska: tímastillirinn, sem hægt er að stilla upp að 4 tímum, gerir þér kleift að gera aðra hluti á meðan á eldun stendur. Miele Gourmet hitaskúffan slekkur sjálfkrafa á sér eftir að valin tímalengd er liðin. Þetta gefur þér aukið frelsi og möguleika á því að einbeita þér að öðrum hlutum á meðan eldun fer fram.

Útdraganlegar brautir að fullu
Hentugt og gott aðgengi
Mögulegt er að draga Miele skúffuna alla leið út, þökk sé fullútdraganlegum brautum. Þetta gerir þér mun auðveldara að hlaða skúffuna og taka hluti úr henni og tryggir þægindi við notkun. Útdaganlegu brautirnar eru stöðugar og traustar þannig að auðvelt er að opna og loka skúffunni.

Fjölbreytt notkun
Fjölmargir valkostir
Allt frá því að bræða súkkulaði til varlegrar afþýðingar matvæla: með Miele Gourmet skúffunni getur þú undirbúið alls konar matvæli alveg eins og þú vilt hafa þau, með hágæða árangri í hvert skipti. Hægeldun er sérstakur hápunktur, en með henni verður hvers kyns kjöt frábærlega safaríkt og mjúkt.
