
Vacuum pökkun
Fullkominn undirbúningur og lengri geymslutími
Einfalt grundvallaratriði sem fylgja margir kostir: praktíska vacuum skúffan frá Miele fjarlægir súrefni og loft úr ílátum, boxum og lofttæmingarpokum. Þessi aðferð skapar frábærar aðstæður fyrir matvælin þín og lengir geymsluþol þeirra. Vacuum pökkun matvæla er einnig fullkominn undirbúningur fyrir sous-vide eldun í gufuofni og fyrir skömmtun og geymslu matvæla.

Undirbúningur fyrir sous-vide eldun
Fullkominn undirbúningur
Miele vacuum skúffa er fullkomin leið til þess að undirbúa matinn þinn fyrir varlega sous-vide eldun í Miele gufuofni. Skúffan fjarlægir súrefni og loft úr lofttæmingarpokunum sem innihalda matvælin þín. Eftir þetta er mögulegt að elda matinn varlega með sous-vide aðferð. Við sous vide eldun varðveitist stór hluti af vítamínum og næringarefnum matvælanna, enn fremur verður kjöt sem er eldað með þessari aðferð sérstaklega safaríkt og bragðgott.

Stjórnborð með snertitökkum
Snjallt og auðskiljanlegt
Einfalt stjórnborð: Miele vacuum skúffunni er stjórnað með auðveldum og snjöllum hætti með SensorTouch stjórnborði, sem er undir glerpanel í falsi skúffunnar. Stjórnborðið veitir beinan aðgang að allri virkni skúffunnar – fyrir hámarksþægindi notanda. Auk þess er stjórnborðið auðvelt í þrifum og þar af leiðandi viðhaldslítið.

Þrjú stig lofttæmingar
Fullkomið fyrir hvaða matvæli sem er
Þú getur valið á milli þriggja mismunandi stiga lofttæmingar: viltu vacuum pakka matvælum eins og ávöxtum sem eru viðkvæm fyrir þrýstingi? Veldu þá stig 1. Við mælum með stigi 3 – hæstu stillingu – fyrir kjöt og stigi 2 fyrir matvæli sem innihalda mikið magn af vökva. Mismunandi stig lofttæmingar veita fullkomna vernd fyrir matinn þinn og tryggja besta mögulega árangur.

Push2open
Ein snerting er nóg
Fullar hendur? Ekkert mál – ýttu varlega á skúffuna og hún opnast strax þökk sé praktísku Push2open tækninni. Tæknibúnaður með gormum sér til þess að skúffan opnist alveg út, sem auðveldar bæði hleðslu og alla notkun. Úthugsað hölduleysið tryggir að skúffan passi fullkomlega við öll innbyggðu Miele tækin.

Stórt nothæft rými
Nægt rými fyrir hvaða stærð sem er
Frábær sveigjanleiki: þú getur notað Miele vacuum skúffuna fyrir fjölbreytt ílát og lofttæmingarpoka í mismunandi stærðum. Innvols skúffunnar er stórt og veitir nægt rými fyrir alls konar matvæli í mismunandi magni. Hámarksstærð matvæla er 250 x 350 mm og hámarkshæð 80 mm.

Lofttæmingarpokar sem eru öruggir fyrir matvæli
Sérhannaðir fyrir matvæli
Miele lofttæmingarpokarnir eru hannaðir með sérstakar kröfur í huga: fyrir örugga geymslu alls kyns matvæla. Þeir eru hitaþolnir, suðuþolnir, rifna ekki auðveldlega, lausir við mýki og öruggir fyrir matvæli. Auk þess eru lofttæmingarpokarnir með hlutlausu bragði, þannig að engin hætta er á því að bragð smitist í matvælin.

Fjölbreytt notkun
Fjölmargir valkostir
Hvort sem þú vilt auka geymsluþol matvælanna þinna eða skipta þeim upp í smærri skammta, er vacuum skúffan frá Miele fullkominn kostur. Vacuum pakkaður matur helst ferskur lengur og er fullkomlega undirbúinn fyrir sous-vide eldun. Njóttu frábærlega bragðmikils kjöts með því að vacuum pakka því marineruðu. Hentugt ráð: vacuum skúffuna má einnig nota til þess að endurinnsigla pakkningum eða krukkum eftir að þær hafa verið opnaðar.

Útdraganlegar brautir að fullu
Hentugt og gott aðgengi
Mögulegt er að draga Miele skúffuna alla leið út, þökk sé fullútdraganlegum brautum. Þetta gerir þér mun auðveldara að hlaða skúffuna og taka hluti úr henni og tryggir þægindi við notkun. Útdaganlegu brautirnar eru stöðugar og traustar þannig að auðvelt er að opna og loka skúffunni.
