Fara í meginmál

Vörunúmer: HO3P-SET

HORL®

HORL 3 brýni - PRO

HORL® 3 Pro er háþróað hnífabrýni sem sameinar nákvæmni, hraða og einfaldleika í notkun. Það hentar jafnt áhugakokkum sem fagfólki sem gerir miklar kröfur til bitgæða hnífa.

Stillanlegur segulkubbur heldur hnífnum stöðugum og býður upp á sex brýningarhalla, 10°, 13° og 15° fyrir nákvæmt bit á hörðu stáli og 20°, 22° og 25° fyrir endingargott bit á sterku stáli.

Sérstakur plánetugírbúnaður tryggir allt að þrefalt hraðari brýningu en með hefðbundnu HORL® 3 brýni. Uppfært demantsbrýni (420 grit) tryggir hraða og jafna brýningu en keramiksbrýni (1000 grit) fínslípar eggina og skilar skörpu og vönduðu biti. Hraðlæsingabúnaður gerir auðvelt að skipta um brýningardiska.


Helstu eiginleikar:

  • Sex brýningarhallar: 10°, 13°, 15°, 20°, 22° og 25°.
  • Plánetugírbúnaður fyrir allt að þrefalt hraðari brýningu.
  • Öflugur segulkubbur með allt að 70% meira gripi en HORL® 2.
  • Uppfært demantsbrýni fyrir hraðari brýningu.
  • Útskiptanlegir brýningardiskar.
  • Vönduð hönnun úr áli og ryðfríu stáli í dökkum bronslit.
  • Hentar flestum gerðum hnífa.
  • Brýning án vatns.


Settið inniheldur:

  • HORL® 3 Pro segulkubb með sex brýningarhöllum.
  • HORL® 3 Pro brýnirúllu með plánetugírbúnaði.
  • Demantsbrýnidisk, 420 grit.
  • Keramiksbrýnidisk, 1000 grit.


Hægt er að kaupa fleiri gerðir brýningardiska sérstaklega.

79.990 kr.