Fara í meginmál

Vörunúmer: SMF02PKEU

Smeg

Hrærivél - 50's Retro Style

Sýningareintak í hillu á frábæru verði.

Einstaklega falleg hrærivél úr 50's línu SMEG. Mjúk ræsing, 10 hraðastillingar og stór 4,8 L skál úr ryðfríu stáli.

99.990 kr.

Hrærivél - 50's Retro Style

Leyfðu sköpunargáfunni að njóta sín í eldhúsinu

Hvort sem þú er upprennandi kokkur, elskar að baka heima eða einfaldlega kannt að meta fallega hönnun, þá er sterkbyggða Smeg hrærivélin eitthvað fyrr þig. Hönnun vélarinnar tók þónokkur ár og eru öll smáatriði hennar þar af leiðandi vandlega úthugsuð. Hrærivélin er áreiðanleg, virkar mjög vel og lítur auk þess frábærlega út. Ergónómísk hönnun og einföld vogarstöng úr stáli gera alla notkun auðvelda og ánægjulega.

Hrærivél - 50's Retro Style

Öflug og áhrifarík

Smeg hrærivélin er fullkomin alhliða hrærivél. Hún er með öflugum 800W beindrifnum mótor, 10 hraðastillingum sem gera þér kleift að aðlaga snúningshraðann nákvæmlega að þínum þörfum og mjúkri ræsingu sem tryggir að matvinnsla byrjar varlega. Plánetu-snúningshreyfingar vélarinnar sjá þar að auki til þess að hrærari, þeytari og hnoðari nái til alls yfirborðs 4,8 lítra skálarinnar og blandi hráefnunum fullkomlega saman.

Hrærivél - 50's Retro Style

Aðlagaðu hrærivélina að þínum þörfum

Þú hefur allt sem þú þarft til þess að hefja notkun á hrærivélinni strax og þú færð hana í hendurnar, þökk sé öllum staðalfylgihlutum eins og hnoðara, þeytara, flötum hrærara, uppskriftabók og áveituskildi. Hins vegar er hægt að panta og bæta við nytsamlegum aukahlutum ef þú óskar þess, eins og til dæmis græju til þess að skera grænmeti, hakka kjöt, búa til pasta og gera ís!

Hrærivél heillituð - 50's Retro Style

Alþjóðleg verðlaun 

Viðtökur 50´s smátækjanna frá Smeg hafa verið frábærar og hafa þau unnið til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna. Smeg hrærivélar hafa í gegnum tíðina fengið Good Design Awards, IF Design Awards og Red Dot Design Awards.