
CapDosing skömmtun með hylkjum
Þægileg og vistvæn skömmtun
Vilt þú þvo sérhæfðan vefnað, eins og ull eða útivistarfatnað, á fullkominn hátt og án mikillar fyrirhafnar? Það er hægt með Miele hylkjum. Þessi litlu hylki eru einfaldlega sett í mýkingarefnishólf þvottaefnisskúffunnar. Miele þvottavélin skammtar síðan innihaldinu inn á réttum tíma í þvottakerfinu – algerlega sjálfvirkt.

Fullkominn árangur
Fullkominn árangur í hvert sinn
Besta samspil þvottaefnis og þvottavélar: Einfaldlega fullkominn þvottur með Miele!

ImpraProtect – vatnsþéttiefni
Tilvalið fyrir íþróttafatnað og regnfatnað
Miele vatnsþéttiefnið viðheldur öndunareiginleikum á textíl sem er notaður utandyra og veitir auk þess viðnám gegn vindi og óhreinindum. Textílþræðirnir viðhalda þannig virkni sinni; halda afram að anda og eru teygjanlegir. Tilvalið er að nota efnið fyrir íþróttafatnað, regnfatnað og hágæða útivistarfatnað. Besti árangur næst síðan með varmafestingu annað hvort í þurrkara eða með straujun að þvotti loknum

Hylki – besta mögulega skömmtun
Þvoðu með fullkomlega skömmtuðu magni
Sérhæfð textílefni þarfnast sérstakrar umhirðu og þrifa. Miele hylki eru tilvalin fyrir hvers kyns sérhæfða notkun. Hvert hylki inniheldur nákvæmlega rétt magn af þvottaefni eða mýkingarefni fyrir þvottakerfi, miðað við þá hleðslu sem mælt er með. Þetta þýðir að engin hætta er á því að þú bætir of litlu magni í þvottinn. Flíkurnar þínar eru alltaf vandlega þrifnar og meðhöndlaðar – án þess að sóa efni.

Sjálfbær þvottur
Ráðleggingar varðandi sjálfbæran þvott
Miele þvottaefni eru áhrifarík frá 30°C, en lægri þvottahiti er umhverfisvænni. Fullnýttu hleðslugetu þvottavélarinnar, nema þegar þú þværð viðkvæmar flíkur. Aðlagaðu magn þvottaefnis miðað við vatnshörku og magn óhreininda í þvotti. Þvoðu reglulega 60°C þvottakerfi með stillingum fyrir hvítan þvott. Skildu dyr þvottavélarinnar eftir opnar á milli þvotta. Ef þú eða einhver annar á heimilinu er með rykofnæmi skaltu þvo rúmfötin við að minnsta kosti 60°C.
