Fara í meginmál

Vörunúmer: CVA7440B

Miele

Innbyggð kaffivél - DirectSensor

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Innbyggð kaffivél með DirectSensor stjórnborði frá Miele með frábæru drykkjaúrvali. Fjölmargir kaffidrykkir auk heits vatns fyrir mismunandi tegundir af tei. Kaffivélin hellir upp á einstaklega arómatískt kaffi þökk sé bragðverndandi mölun og bragðaukandi foruppáhellingu. Mjólkurflöskunni er smellt inn að framanverðu með afar auðveldum hætti og jafn auðvelt er að fjarlægja hana. Bollaskynjari tryggir fullkomna lengd frá kaffistútum að bolla. Kaffivélarfronturinn opnast alveg til hliðar sem veitir frábært aðgengi að vatnstanki, baunatanki, tanki fyrir kaffikorg og skúffu fyrir affallsvatn.

869.990 kr.

Ekki til á lager

Innbyggð kaffivél með CoffeeSelect & beintengd í vatn - M-Touch

EasyClick mjólkurtankur 

Mjólkurtanki smellt auðveldlega á kaffivél

Þægileg tækninýjung: mjólkurflöskunni er smellt inn að framanverðu með afar auðveldum hætti og jafn auðvelt er að fjarlægja hana.

Innbyggð kaffivél með CoffeeSelect & beintengd í vatn - M-Touch

Fullkomnir kaffidrykkir

Sönn upplifun fyrir bragðlaukana

Njóttu dásamlegra kaffidrykkja til fulls með hágæða innbyggðum Miele kaffivélum. Kaffivélin hellir upp á einstaklega arómatískt kaffi þökk sé bragðverndandi mölun og bragðaukandi foruppáhellingu. Hellt er upp á kaffidrykk strax að lokinni mölun og nýmalaðar baunir notaðar í hvern og einn drykk. 

Innbyggð kaffivél með CoffeeSelect & beintengd í vatn - M-Touch

Auðveld í notkun 

Notkun einstaklega þægileg 

Snjallt og þægilegt: snertu einn takka og vélin hellir upp á uppáhalds kaffi- eða tedrykkinn þinn. Hæðaskynjari fyrir bolla, uppáhelling tveggja kaffidrykkja í einu og tímastillir eru allt eiginleikar sem gera innbyggðu Miele kaffivélina enn þægilegri í notkun.

Innbyggð kaffivél með CoffeeSelect & beintengd í vatn - M-Touch

Hæðaskynjari fyrir bolla

Alltaf rétt lengd frá kaffistútum að bolla

Fullkomin staðsetning: kaffivélin skynjar hæð kaffibollans þíns og staðsetur kaffistúta sjálfkrafa samkvæmt því. Fjarlægð frá bolla er stillanleg og mögulegt að lækka hana í 4 cm og hækka í 16,5 cm. Hæðaskynjarinn kemur í veg fyrir skvettur og tryggir þægindi við notkun mishárra bolla og glasa. BrilliantLight kastar síðan fallegri og mjúkri LED lýsingu á kaffibollann þinn til þess að kóróna uppáhellinguna.

Innbyggð kaffivél með CoffeeSelect & beintengd í vatn - M-Touch

ComfortClean 

Fullkomin þrif í uppþvottavél 

Með ComfortClean, gæti ekki verið auðveldara að þrífa kaffivélina: næstum alla einstaka hluta vélarinnar er hægt að þrífa í uppþvottavél, að meðtöldum vatnstanki, affallsbakka og tanki undir kaffikorg. Þetta tryggir hámarks hreinlæti og hjálpar til með að viðhalda virði kaffivélarinnar.

Innbyggð kaffivél með CoffeeSelect & beintengd í vatn - M-Touch

Kanna af kaffi 

Þægilegt þegar gestir koma í heimsókn

Þarftu að búa til kaffi fyrir marga í einu? Snertu einn takka á innbyggðu Miele kaffivélinni, settu stóra kaffikönnu undir kaffistútana og kaffivélin hellir upp á allt að átta bolla af kaffi í röð einn á eftir öðrum. Vélin getur einnig hellt upp á nægt heitt vatn til þess að fylla teketil. Mögulegt er að kaupa praktíska, einangrandi kaffikönnu frá Miele aukalega sem heldur teinu eða kaffinu þínu heitu í langan tíma. 

Innbyggð kaffivél með CoffeeSelect & beintengd í vatn - M-Touch

Tímastillir

Alltaf á réttum tíma

Hvenær sem þér hentar: mögulegt er að stilla kaffivélina þannig að hún kveiki og slökkvi á sér á ákveðnum tíma dags, þegar þér hentar. Til dæmis er hægt að láta kaffivélina kveikja á sér þannig að hún sé tilbúin fyrir morgunmat og slökkva á sér á kvöldin. Sjálfvirka hreinsun og afkölkun er líka hægt að tímastilla eftir þínum þörfum – fyrir meiri sveigjanleika. Auk þessa getur kaffivélin slökkt á sér ef hún er ekki í notkun í lengri tíma til þess að spara orku. 

Innbyggð kaffivél með CoffeeSelect & beintengd í vatn - M-Touch

AromaticSystemFresh 

Alltaf nýmalað

Finndu muninn: kaffivélin hellir upp á einstaklega arómatískt kaffi þökk sé bragðverndandi mölun. Baunirnar eru malaðar ferskar í keilulaga kvörninni fyrir hvern og einn drykk og hellt upp á kaffidrykkinn strax að mölun lokinni. Ný staðsetning kvarnar gerir þetta mögulegt, en hún er staðsett beint fyrir ofan uppáhellarann. Engar leifar af kaffi verða eftir í kvörninni frá fyrri drykk sem tryggir hreint bragð. Auk þessa er keilulaga kvörnin mjög hljóðlát þannig að þú getur notið kaffidrykksins þíns í friði og ró.

Innbyggð kaffivél með CoffeeSelect & beintengd í vatn - M-Touch

Sérsniðnar notendavalmyndir

Vistaðu stillingar fyrir persónulega upplifun

Fyrir persónulega upplifun: þú getur vistað uppáhalds drykkinn þinn í sérsniðinni notandavalmynd, þannig að þú þurfir ekki að stilla hann inn í hvert skipti. Mögulegt er að stilla allt að tíu notendavalmyndir. Sérhver einstaklingur á heimilinu getur því búið til sína eigin notandavalmynd þar sem allir kaffidrykkir eru stilltir eins og hann vill hafa þá. Sérsniðnu notendavalmyndirnar innihalda allar stillingar sem eru mögulegar fyrir uppáhalds drykkina þína: kaffimagn, vatnsmagn, hitastig vatns og magn mjólkur eða mjólkurfroðu ef það á við.